Fylgiskjal

Tekið fyrir: 6. ráðsfundur

Tillögur nefndar C að kafla um dómsvald

DÓMSVALD

D1 Skipun dómsvalds

Skipun dómsvaldsins, þar á meðal dómstig og fjöldi dómara, skal ákveðin með lögum.

D2 Sjálfstæði dómstóla

Sjálfstæði dómstóla skal tryggt með lögum. Dómstólar mega hvorki sinna störfum sem samkvæmt
venju eða eðli sínu heyra undir aðra valdþætti ríkisins né má fela þeim slíkt með lögum.

D3 Lögsaga

Dómstólar skera endanlega úr um réttindi og skyldur að einkarétti, svo og um sök um refsiverða
háttsemi og ákveða viðurlög við henni.

Dómstólar leysa úr stjórnskipulegu gildi laga að því marki sem á það reynir í dómsmáli.

Dómstólar skera úr um hvort stjórnvöld hafi farið að lögum. Hjá ákvörðun stjórnvalds verður ekki
komist í bráð með því að bera lögmæti hennar undir dóm.

D4 Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands er æðsti dómstóll ríkisins og hefur hann endanlegt vald til að leysa úr öllum
málum sem lögð eru fyrir dómstóla. Með lögum má undanskilja lögsögu hans mál sem sæta úrlausn
sérdómstóla á einu dómstigi.

D5 Skipun dómara

Dómarar eru þeir sem skipaðir hafa verið ótímabundið í embætti eða settir til að gegna því um
tiltekinn tíma. Til dómstarfa geta dómstólar ráðið eða kvatt aðra eftir því sem mælt er fyrir í lögum.

Forseti Íslands skipar dómara eða setur í embætti og veitir þeim lausn án tillögu ráðherra. Tryggt
skal að hæfni og málefnaleg sjónarmið ráði við veitingu embætta dómara. Lögskipuð nefnd skal
meta hæfi umsækjenda. Velji forseti ekki í embætti dómara einn þeirra sem nefndin telur hæfasta er
skipun háð samþykki Alþingis.

Dómara verður ekki vikið úr embætti nema hann hafi glatað skilyrði til að gegna því eða sinni ekki
skyldum sem starfanum tengjast þannig að varðað geti embættismissi að lögum.

Frávikning dómara verður aðeins ákveðin með dómi.

D6 Sjálfstæði dómara

Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögum.