Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
- Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
- Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
- Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
- Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
- Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.
Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.
Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.