Tveir ráðsfundir í vikunni

11.04.2011 11:39

Tveir ráðsfundir í vikunni

Stjórnlagaráð heldur tvo ráðsfundi í þessari viku. Fyrri fundurinn verður miðvikudaginn 13. apríl og hefst kl. 9.30. Síðari fundurinn verður fimmtudaginn 14. apríl og hefst kl. 13. Dagskrá fundanna verður birt hér á vefsetrinu innan skamms.  Ráðsfundir eru opnir almenningi meðan húsrúm leyfir. Þeir eru einnig sendir út beint hér á vefsetrinu.

 

Fara í fréttalista