Kostnaður við Þjóðfund 2010 nemur 70% af kostnaðaráætlun
21.02.2011 12:39
Nú liggur fyrir endanlegt fjárhagsuppgjör vegna Þjóðfundar 2010 og ljóst að kostnaður varð um 63.5 milljónir króna sem er aðeins um 70 prósent af kostnaðaráætlun sem nam 91.7 milljónum króna. Hér að neðan er kostnaðaráætlunin sundurgreind og raunkostnaður. Þar sést m.a. að sú ákvörðun að, greiða þátttakendum fundaþóknun og þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins ferðaþóknun og gistikostnað í Reykjavík, til að tryggja eðlilega dreifingu þátttakenda af öllu landinu, er um 40 prósent af heildarkostnaðinum.
KOSTNAÐARÁÆTLUN ÞJÓÐFUNDAR OG RAUN NIÐURSTAÐA |
||||
|
Gjaldaliðir |
Kr. áætlun |
Kr. rauntölur |
% |
Þóknun Þjóðfundarfulltrúa |
17.500.000 |
16.152.500 |
25,43% |
|
|
Ferðakostnaður fulltrúa utan höfuðborgarsvæðis |
7.539.000 |
4.739.981 |
7,46% |
|
Dvalarkostnaður fulltrúa utan höfuðborgarsvæðisins |
8.975.000 |
4.138.800 |
6,52% |
|
Þjálfun starfsfólks fundar og starfsþóknanir þess |
6.265.000 |
3.617.500 |
5,69% |
|
Laugardalshöllin. Leiga, gólf, þrif o.þ.h. |
4.800.000 |
3.946.217 |
6,21% |
|
Leiga á húsgögnum, búnaður, umgjörð |
4.900.000 |
2.423.627 |
3,82% |
|
Tækniumgjörð og þjónusta |
12.000.000 |
10.078.720 |
15,87% |
|
Kostn. við úrtakið, skráningargrunnur, símaver, póstur á fulltrúa |
5.564.500 |
2.372.558 |
3,73% |
|
Kynningar- og auglýsingarkostn. Vefsíðugerð/umsjón, borgarafundir |
8.050.000 |
6.342.073 |
9,98% |
|
Fundarkerfið, gögn, úrvinnsla gagna |
5.390.450 |
4.195.735 |
6,60% |
|
Matur og veitingar |
6.375.200 |
5.193.313 |
8,18% |
|
Ýmis kostnaður og ófyrirsjáanlegt (5%) |
4.367.958 |
324.004 |
0,51% |
Samtals áætlaður kostnaður við Þjóðfundinn |
91.727.108 |
63.525.028 |
100,00% |