Undirbúningur fyrir Þjóðfund 2010 á lokasprettinum

03.11.2010 14:13

Undirbúningur fyrir Þjóðfund 2010 á lokasprettinum

Undirbúningur Þjóðfund 2010 er á lokastigi, en tæplega tvö hundruð manns koma að honum með einum eða öðrum hætti. Verið er að ljúka þjálfun 128 lóðsa eða borðstjóra en hlutverk þeirra er að leiða umræður á fundinum, tryggja að þátttakendur hafi jöfn tækifæri til að tjá sig og koma hugmyndum þeirra í réttan farveg. Lóðsar eru nú að hringja í þátttakendur til að lýsa tilhögun fundarins.  Það er mikil og góð stemning í fólki og þó að því sé alls ekki skylt að undirbúa sig eru margir búnir að lesa stjórnarskrána. Einn þátttakandi sem haft var samband við sagðist vera búin að lesa ÞJÓÐSKRÁNA aftur á bak og áfram og þegar hann áttaði sig á missögninni sagðist hann líka vera búin að lesa símaskrána :)

Kynjaskipting þátttakenda er nánast jöfn og dreifingin þeirra er nokkuð í samræmi við aldurs-og búsetudreifingu þjóðarinnar.  Elsti þátttakandi á þjóðfundi er 89 ára, sá yngsti verður 18 ára nokkrum dögum fyrir kosningar til stjórnlagaþings, nokkur pör eða hjón voru boðuð (fyrir tilviljun) til fundarins og nýbökuð móðir hefur tilkynnt komu sína en fær ungbarnið til sín í hléum á fundinum til að gefa því að drekka.Fyrstu fréttir af  Þjóðfundi 2010 og viðfangsefni hans eru væntanlegar strax um hádegisbil á laugardeginum.  Á laugardagskvöldið, eftir fundinn, verður unnið úr niðurstöðum hans með það í huga að geta kynnt fyrstu niðurstöður á sunnudag. Boðað er til blaðamannafundar sunnudaginn 7. nóvember kl. 16 á Grand hótel.  Þar mun stjórnlaganefnd kynna frumniðurstöður Þjóðfundar 2010.  Lögum samkvæmt mun stjórnlaganefnd síðan vinna áfram úr niðurstöðum fundarins og afhenda þær stjórnlagaþingi þegar það kemur saman í febrúar 2011.

Fara í fréttalista