Stjórnarskrá fólksins-opinn kynningarfundur
26.10.2010 16:04
Stjórnarskrárfélagið efnir til opins fundar undir yfirskriftinni ,,Stjórnarskrá fólksins" annað kvöld, miðvikudaginn kl. 20.30 í sal FÍH, Rauðagerði 27.
Að þessu sinni eru þrír frummælendur, sem sitja fyrir svörum eftir flutning erinda.
- Þorbjörg I. Jónsdóttir hrl. - ,,Stjórnarskráin með kynjagleraugum".
- Svanur Kristjánsson prófessor - ,,Leið Íslands til lýðræðis: Stjórnarskráin frá 1944″.
- Ellý Katrín Guðmundsdóttir stjórnlagaþingsnefndarkona - ,,Tækifæri fyrir komandi kynslóðir".