Borgarafundir um endurskoðun stjórnarskrárinnar
30.09.2010 10:24
Stjórnlaganefnd og landshlutasamtök sveitarfélaga ætla á næstu vikum að halda borgarafundi um endurskoðun stjórnarskrárinnar á sjö stöðum á landinu. Fundirnir eru kynningafundir um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað verður eftir sjónarmiðum íbúa í hverjum landshluta. Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.
Borgarafundirnir verða haldnir í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga á eftirtöldum stöðum:
Með FV - á Ísafirði 4. október kl: 19:30-21:00 í Háskólasetri Vestfjarða og í Skor, Þróunarsetri Patreksfjarðar með aðst. fjarfundarbúnaðar .
Með SSA - á Egilsstöðum 5. október kl: 20:00-22:00 á Hótel Héraði.
Með SSNV - á Sauðárkróki 12. október kl:17:00-19:00 í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Með SSV - í Háskólanum á Bifröst 13. okóber kl:13:00-15:00.
Með SASS - á Hvolsvelli 14. október kl: 17:00-19:00 í Félagsheimilinu Hvoli.
Með EYÞING - á Akureyri 20. október kl:20:00-22:00 í Menningarhúsinu Hofi.
Með SSH - í Salnum í Kópavogi 21. október 17:30-19:30.