Breytingatillaga #122

Við 60. grein. Staðfesting laga

Flytjendur:
  • Katrín Fjeldsted
BreytingartillagaÁkvæði eftir breytinguÁkvæði í frumvarpsdrögum

Úr 60. grein um staðfestingu laga fellur út síðasta málsgrein: Heimild til synjunar á ekki við um fjárlög o.s.frv.

Er Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp undirritar forseti Alþingis það og leggur innan tveggja vikna fyrir forseta Íslands til staðfestingar, og veitir undirskrift hans því lagagildi.
Forseti Íslands getur ákveðið innan viku frá móttöku frumvarps að synja því staðfestingar. Skal sú ákvörðun vera rökstudd og tilkynnt til forseta Alþingis. Frumvarpið fær þá engu að síður lagagildi, en bera skal lögin innan þriggja mánaða undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Ræður einfaldur meirihluti hvort lögin halda gildi sínu. Atkvæðagreiðsla fer þó ekki fram felli Alþingi lögin úr gildi innan fimm daga frá synjun forseta. Um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu skal að öðru leyti mælt fyrir í lögum.

Heimild til synjunar á ekki við um fjárlög, fjáraukalög og lög um skattamálefni, lög um ríkisborgararétt og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum.

Skýringar:

Breytingartillögu #90 var vísað til nefndar eftir síðasta ráðsfund. Nefndin hafnar henni, og telur ekki ástæðu til að taka afstöðu eða aðhafast vegna þessarar tillögu enda hafði verið kosið um breytingartillögu er gekk lengra og aukinheldur er hér mælt fyrir breytingartillögu þess efnis að málsliðurinn falli niður.