Breytingatillaga #121
- Silja Bára Ómarsdóttir
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Í stað orðsins "ósnortin" í 2. mgr.komi orðið "óbyggð". | Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda. Öllum skal með lögum tryggður réttur á heilnæmu umhverfi, fersku vatni, ómenguðu andrúmslofti og óspilltri náttúru. Í því felst að fjölbreytni lífs og lands sé viðhaldið og náttúruminjar, óbyggð víðerni, gróður og jarðvegur njóti verndar. Fyrri spjöll skulu bætt eftir föngum. Nýtingu náttúrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur. Með lögum skal tryggja rétt almennings til að fara um landið í lögmætum tilgangi með virðingu fyrir náttúru og umhverfi.
| Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda. Öllum skal með lögum tryggður réttur á heilnæmu umhverfi, fersku vatni, ómenguðu andrúmslofti og óspilltri náttúru. Í því felst að fjölbreytni lífs og lands sé viðhaldið og náttúruminjar, ósnortin víðerni, gróður og jarðvegur njóti verndar. Fyrri spjöll skulu bætt eftir föngum. Nýtingu náttúrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur. Með lögum skal tryggja rétt almennings til að fara um landið í lögmætum tilgangi með virðingu fyrir náttúru og umhverfi. |
Skýringar:
Tekið er tillit til athugasemda frá Aagot Vigdísi Óskarsdóttur og Hilmari Malmquist.