Breytingatillaga #101

Við 57. grein. Ályktunarbærni

Flytjendur:
  • Silja Bára Ómarsdóttir
BreytingartillagaÁkvæði eftir breytinguÁkvæði í frumvarpsdrögum

Skilyrt að aukinn meirihluti þingmanna samþykki lög sem ekki má synja eða halda þjóðaratkvæðagreiðslu um.

Alþingi getur því aðeins gert samþykkt um mál að meira en helmingur þingmanna sé á fundi og taki þátt í atkvæðagreiðslu.

Eigi að afgreiða lög sem ekki má synja eða setja í þjóðaratkvæðagreiðslu verða 2/3 þingmanna að vera viðstaddir atkvæðagreiðslu.

 

Alþingi getur því aðeins gert samþykkt um mál að meira en helmingur þingmanna sé á fundi og taki þátt í atkvæðagreiðslu.

Skýringar:

Til að tryggja eðlilegt aðhald er nauðsynlegt að aukinn meirihluti þingmanna sé viðstaddur atkvæðagreiðslu þegar um er að ræða mál sem ekki má synja eða setja í þjóðaratkvæðagreiðslu.