Breytingatillaga #92
Við 65. grein. Framkvæmd undirskriftasöfnunar og þjóðaratkvæðagreiðslu
- Pawel Bartoszek
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Tilgreint Rísi ágreiningur um hvort mál uppfylli framangreind skilyrði skera dómstólar þar úr. | Mál sem lagt er í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt ákvæðum þessa kafla skal varða almannahag. Hvorki er hægt að krefjast atkvæðagreiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum né heldur um skattamálefni og ríkisborgararétt. Rísi ágreiningur um hvort mál uppfylli ofangreind skilyrði skera dómstólar þar úr. Í lögum skal kveðið á um framkvæmd málskots eða frumkvæðis kjósenda, svo sem um form og fyrirsvar fyrir kröfunni, tímalengd til söfnunar undirskrifta og um fyrirkomulag þeirra, hverju megi til kosta við kynningu, hvernig afturkalla megi kröfuna að fengnum viðbrögðum Alþingis svo og um hvernig haga skuli atkvæðagreiðslu. | Mál sem lagt er í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt ákvæðum þessa kafla skal varða almannahag. Hvorki er hægt að krefjast atkvæðagreiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum né heldur um skattamálefni og ríkisborgararétt. Heimilt er að vísa frá málum sem uppfylla ekki ofangreind skilyrði eða eru ekki þingtæk að öðru leyti. Í lögum skal kveðið á um framkvæmd málskots eða frumkvæðis kjósenda, svo sem um form og fyrirsvar fyrir kröfunni, tímalengd til söfnunar undirskrifta og um fyrirkomulag þeirra, hverju megi til kosta við kynningu, hvernig afturkalla megi kröfuna að fengnum viðbrögðum Alþingis svo og um hvernig haga skuli atkvæðagreiðslu. |
Skýringar:
Breytingartillaga C-nefndar er borin upp vegna þeirra athugasemda (m.a. frá forsætisráðuneytinu) að óljóst sé hver eigi að taka afstöðu til þess hvort mál standist þau skilyrði sem upptalin eru í 1. og 2. mgr. Það er að þau varði almannahag og að fjárlög, fjáraukalög, lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum, lög um skattamálefni og ríkisborgararétt eru undanskilin.
Í tillögunni felst það að ef Alþingi ákveður að tiltekið mál varði t.d. ekki almannahag getur hópur kjósenda skotið þeirri ákvörðun til dómstóla, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum.