Breytingatillaga #71
- Örn Bárður Jónsson
- Þorkell Helgason
- Katrín Oddsdóttir
- Illugi Jökulsson
- Gísli Tryggvason
- Erlingur Sigurðarson
- Arnfríður Guðmundsdóttir
- Andrés Magnússon
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Orðin "...31. júlí á fjórða ári frá kosningu" í 81. gr. frumvarpsins breytist svo að þar standi: "... 30. júní á fimmta ári frá kosningu." | Falli forseti frá eða láti af störfum áður en kjörtímabili er lokið skal kjósa nýjan forseta til 30. júní á fimmta ári frá kosningu. | Falli forseti frá eða láti af störfum áður en kjörtímabili er lokið skal kjósa nýjan forseta til 31. júlí á fjórða ári frá kosningu. |
Skýringar:
Afleiðing af breytingartillögu við 77. gr., verði hún samþykkt. Sjá skýringu við hana.