Breytingatillaga #68

Við . grein. Aðfaraorð

Flytjendur:
  • Lýður Árnason
BreytingartillagaÁkvæði eftir breytinguÁkvæði í frumvarpsdrögum

Breyttur texti aðfararorða.

Vér íslendingar, breyzkir og sundurleitir sem við erum, setjum þessa stjórnarskrá í von um að hún muni þoka okkur áleiðis í átt að friðsæld og réttlæti.

Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt þjóðfélag þar sem allir sitja við sama borð. Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman eigum við og berum ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi, náttúru, sögu, tungu og menningu.

Ísland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti og lýðræði að hornsteinum.

Stjórnvöld skulu vinna að velferð íbúa landsins, efla menningu þeirra og virða margbreytileika mannlífs, lands og lífríkis.

Við viljum efla friðsæld, öryggi, heill og hamingju á meðal okkar og komandi kynslóða. Við einsetjum okkur að vinna með öðrum þjóðum að friði og virðingu fyrir jörðinni og öllu mannkyni.

Með þessa hugsjón að leiðarljósi setjum við okkur nýja stjórnarskrá, æðstu lög landsins, sem öllum ber að virða.

Skýringar:

Önnur nálgun að fallegri heimreið.