Breytingatillaga #58
- Þórhildur Þorleifsdóttir
- Þorkell Helgason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Hlutfallið fimm sjöttu í öðrum málslið breytist í þrjá fjórðu. |
Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga á stjórnarskrá skal það borið undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi. Hafi þrír fjórðu hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsluna niður og öðlast þá frumvarpið gildi engu að síður.
| Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga á stjórnarskrá skal það borið undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi. Hafi fimm sjöttu hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsluna niður og öðlast þá frumvarpið gildi engu að síður. |
Skýringar:
Við núverandi skipan er auðvelt að breyta stjórnarskránni, aðeins Þarf einfaldan meirihluta á tveimur þingum með almennum Alþingiskosningum á milli til að breyta stjórnarskrá. Stjórnlagaráð leggur til að erfiðar verði að breyta stjórnarskrá, annað hvort með þjóðaratkvæðagreiðslu eða mjög auknum meirihluta á þingi.
Hlutfallið fimm sjöttu er svo hátt að sú aðferð við stjórnarskrábreytingu verður svo gott sem ónothæft. Því er lagt til að hlutfallið breytist í þrjá fjórðu sem er eftir sem áður mjög aukinn meirihluti. - Og mun stífari krafa en yfirleitt er í þeim löndum sem við berum okkur saman við.