Breytingatillaga #28
- Lýður Árnason
- Katrín Oddsdóttir
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Mælt er með að tveir síðustu málsliðir ákvæðisins falli niður. | Forseta Íslands er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf á meðan hann gegnir embætti. Sama gildir um störf í þágu einkafyrirtækja og opinberra stofnana þótt ólaunuð séu. | Forseta Íslands er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf á meðan hann gegnir embætti. Sama gildir um störf í þágu einkafyrirtækja og opinberra stofnana þó ólaunuð séu. Ákveða skal með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta. Óheimilt er að lækka greiðslur þessar til forseta kjörtímabil hans. |
Skýringar:
Að tilgreina sérstaklega starfskjör embættismanna og tilhögun þeirra í stjórnarskrá er allt í senn: Óþarft, úrelt og áminning um fyrri tíma forréttindi.
Mælt með að tveir síðustu málsliðir ákvæðisins falli brott.
Jafnframt má benda á að ákvæðið reyndist koma í veg fyrir að núverandi forseti gæti skv. eigin vilja lækkað laun sín í kjölfar efnahagshrunsins.