Breytingatillaga #10
- Lýður Árnason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
Breytingartillaga | Ákvæði eftir breytingu | Ákvæði í frumvarpsdrögum |
---|---|---|
Mæli með brottfalli þessa ákvæðis. | Herskyldu má aldrei í lög leiða. |
Skýringar:
Þetta ákvæði hefur litla þýðingu á friðartímum en gæti valdið vandræðum annars. Friður er ekki val og getur breyst í andhverfu sína skjótt og óforvandis. Verði einhvers konar herkvaðning nauðsynleg er illt að sumir geti komið sér undan í skjóli þessa ákvæðis. Sé gripið til neyðarréttar er ákvæðið hvort eð er marklaust nema sem einhvers konar markmiðsyfirlýsing um hluti sem við fáum ekki ein um ráðið.