Fylgiskjal

Tekið fyrir: 8. ráðsfundur

Tillögur nefndar A frá 7. fundi til afgreiðslu á 8. fundi

Fyrstu greinar mannréttindakafla

Tillögurnar sem nú eru lagðar fram hafa tekið breytingum frá því sem kynnt var á 7. ráðsfundi, þar sem nefnd A hefur tekið tillit til eftirfarandi sjónarmiða eftir því sem við á:

  • umræður á ráðsfundi
  • breytingartillögur fulltrúa í Stjórnlagaráði
  • innsend erindi
  • athugasemdir við áfangaskjal

Vinnu við áfangaskjalið lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

1

Öllum skal tryggður réttur til lífs og til að lifa með mannlegri reisn í réttlátu samfélagi. Margbreytileiki mannlífsins skal virtur í hvívetna.

Skýringar nefndar:

  • Ný grein.
  • Byggist m.a. á samningi um réttindi fatlaðs fólks (UN Convention on the Rights of People with Disabilities).
  • Er ætlað að tryggja einstaklingum möguleika til fullrar þátttöku og virkrar aðildar í samfélaginu.
  • Réttur til lífs skv. 2. grein mannréttindasáttmála Evrópu.

2

Allir eru jafnir fyrir lögum og skulu njóta mannréttinda án nokkurs manngreinarálits, svo sem vegna kynferðis, aldurs, arfgerðar, búsetu, efnahags, fötlunar, kynhneigðar, litarháttar, skoðana, stjórnmálatengsla, trúarbragða, uppruna, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.

Skýringar nefndar:

  • Er 65. grein núgildandi stjórnarskrár.
  • „Manngreinarálit" er sett inn til samræmis við 26. grein alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi (e. discrimination).
  • Atriðum raðað í stafrófsröð á eftir orðinu „kynferði".
  • Við bætist „aldurs“, „búsetu“, „fötlunar“ og „kynhneigðar“ skv. tillögu í skýrslu stjórnlaganefndar. „Aldur“ og „búseta“ voru í hornklofa í skýrslu stjórnlaganefndar, hér eru orðin sett inn til umræðu.
  • Við bætist „arfgerð“, m.a. vegna erindis til nefndarinnar.
  • Við bætist „stjórnmálatengsla“ til að bregðast við stöðu í þjóðfélaginu.
  • „Þjóðernisuppruni“ verður „uppruni“.
  • „Kynþáttur“ fellur út, enda hugtakið ekki notað lengur meðal fræðimanna.

3

Allir skulu njóta mannhelgi og verndar gegn hvers kyns ofbeldi, svo sem kynferðisofbeldi, innan heimilis og utan.

Skýringar nefndar:

  • Ný grein.
  • Undirstrikað hversu mikið samfélagsmein ofbeldi er.
  • Var kynnt sem hluti af grein um friðhelgi einkalífs á ráðsfundi 6. maí, er nú sjálfstæð grein.

4

Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.

Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.

Skýringar nefndar:

  • Er 71. grein núgildandi stjórnarskrár, efnislega óbreytt.
  • Málsgrein um mannhelgi, sem var kynnt sem hluti þessarar greinar á ráðsfundi 6. maí, gerð að sjálfstæðri grein.

5

Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.

Hver maður á rétt á að tjá hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.

Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum til verndar öryggi, heilsu, réttindum eða mannorði annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.

Skýringar nefndar:

  • Er 73. grein núgildandi stjórnarskrár.
  • Texti einfaldaður án efnislegra breytinga.
  • „Öryggi" ætlað að ná til ríkis og almennings.
  • Skoða þarf hvort orðin „siðgæði“ og „allsherjarregla“ séu nauðsynleg.

6

Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst og skulu ráðstafanir yfirvalda í málum sem varða börn taka mið af því sem þeim er fyrir bestu.

Barni skal tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í öllum málum sem það varðar og skal tekið réttmætt tillit til skoðana í samræmi við aldur þess og þroska.

Skýringar nefndar:

  • Er 3. mgr. 76. greinar núgildandi stjórnarskrár.
  • Gert að sjálfstæðri grein skv. tillögu í skýrslu stjórnlaganefndar.
  • Færir stjórnarskrá til samræmis við 3. og 12. greinar samnings um réttindi barnsins.
  • Efnisbreytingar frá því sem kynnt var á ráðsfundi 6. maí, til að bregðast við innsendu erindi Unicef.

7

Rétt eiga menn á að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess. Félag má ekki leysa upp með ráðstöfun stjórnvalds. Banna má þó um sinn starfsemi félags sem er talið hafa ólöglegan tilgang, en höfða verður þá án ástæðulausrar tafar mál gegn því til að fá því slitið með dómi.

Engan má skylda til aðildar að félagi. Með lögum má þó kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmæltu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra.

Skýringar nefndar:

  • Er 1. og 2. mgr. 74. greinar núgildandi stjórnarskrár.
  • Félagafrelsi gert að sjálfstæðri grein í kjölfar umræðna á ráðsfundi 6. maí.

8

Rétt eiga menn á að safnast saman vopnlausir. Lögreglunni er heimilt að vera við almennar samkomur.

Skýringar nefndar:

  • Er 3. mgr. 74. greinar núgildandi stjórnarskrár.
  • Fundafrelsi gert að sjálfstæðri grein í kjölfar umræðna á ráðsfundi 6. maí.
  • Fellt brott, í samræmi við umræður við áfangaskjal: „Banna má mannfundi undir berum himni ef uggvænt þykir að af þeim leiði óspektir.“

9

Rétt til íslensks ríkisfangs öðlast þeir sem eiga foreldri með íslenskt ríkisfang. Ríkisborgararéttur verður að öðru leyti veittur samkvæmt lögum. Engan má svipta íslenskum ríkisborgararétti.

Íslenskum ríkisborgara verður ekki meinað að koma til landsins né verður honum vísað úr landi. Með lögum skal skipað rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér, svo og fyrir hverjar sakir sé hægt að vísa þeim úr landi.

Engum verður meinað að hverfa úr landi nema með ákvörðun dómstóla. Stöðva má þó brottför manns úr landi með lögmætri handtöku.

Allir, sem dveljast löglega í landinu, skulu ráða búsetu sinni og vera frjálsir ferða sinna með þeim takmörkunum sem eru settar með lögum.

Skýringar nefndar:

  • Er 66. grein núgildandi stjórnarskrár.
  • Í samræmi við núverandi löggjöf er felld brott setningin „Með lögum má þó ákveða að maður missi þann rétt ef hann öðlast með samþykki sínu ríkisfang í öðru ríki.“
  • Bætt við skilgreiningu á veitingu ríkisborgararéttar, í samræmi við umræður á ráðsfundi 6. maí og við áfangaskjal. Sú tillaga er sett fram til að fá fram frekari umræðu, sem nefndin getur tekið tillit til á síðari stigum.

10

Engan má svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum.

Hver sá sem hefur verið sviptur frelsi á rétt á að fá að vita tafarlaust um ástæður þess.

Hvern þann sem er handtekinn vegna gruns um refsiverða háttsemi skal án undandráttar leiða fyrir dómara. Sé hann ekki jafnskjótt látinn laus skal dómari, áður en sólarhringur er liðinn, ákveða með rökstuddum úrskurði hvort hann skuli sæta gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhaldi má aðeins beita fyrir sök sem fangelsisvist liggur við. Með lögum skal tryggja rétt þess sem sætir gæsluvarðhaldi til að skjóta úrskurði um það til æðra dóms. Maður skal aldrei sæta gæsluvarðhaldi lengur en nauðsyn krefur.

Hver sá sem er af öðrum ástæðum sviptur frelsi á rétt á að dómstóll kveði á um lögmæti þess svo fljótt sem verða má. Reynist frelsissvipting ólögmæt skal hann þegar látinn laus.

Hafi maður verið sviptur frelsi að ósekju skal hann eiga rétt til skaðabóta.

Skýringar nefndar:

  • Er 67. grein núgildandi stjórnarskrár.
  • Varðhald fellt út, þar sem það hefur verið aflagt sem refsiúrræði.
  • Heimild dómara til að láta menn lausa gegn tryggingu felld út í kjölfar umræðna á ráðsfundi 6. maí. Heimildin þyki bjóða upp á misskilning um réttarstöðu og mismunun á grundvelli efnahags – en henni hefur aldrei verið beitt.

11

Engum verður gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð þegar hún átti sér stað. Viðurlög mega ekki verða þyngri en þá voru leyfð í lögum.

Skýringar nefndar:

  • Er 1. mgr. 69. greinar núgildandi stjórnarskrár.
  • Texti einfaldaður án efnislegrar breytingar.
  • Kanna þarf hvort þörf sé á að hverfa að einhverju leyti aftur til fyrri texta, sérstaklega hvað varðar hina fullkomnu lögjöfnun sem er sterkari í þessu ákvæði en almennum lögum.

12

Í lögum má aldrei mæla fyrir um dauðarefsingu.

Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.

Skýringar nefndar:

  • Er 68. grein og 2. mgr. 69. greinar núgildandi stjórnarskrár.
  • Bann við herskyldu fært úr þessari grein í kjölfar umræðu á ráðsfundi 6. maí.

13

Herskyldu má aldrei í lög leiða.

Skýringar nefndar:

  • Ný grein.
  • Bætt er við banni við herskyldu, m.a. til að bregðast við kröfu þjóðfundar og innsendum erindum.
  • Bann við herskyldu gert að sjálfstæðri grein í kjölfar umræðu á ráðsfundi 6. maí.

14

Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Dómþing skal háð í heyranda hljóði nema dómari ákveði annað lögum samkvæmt til að gæta öryggis eða réttinda málsaðila.

Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.

Skýringar nefndar:

  • Er 70. grein núgildandi stjórnarskrár.
  • Texti einfaldaður án efnislegrar breytingar.
  • „Öryggi" nær til ríkis og almennings.
  • Skoða þarf hvort orðin „velsæmi" og „allsherjarregla" séu nauðsynleg.

 

AIJ, SBÓ/11.5.2011