15. ráðsfundur

01.07.2011 09:30

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Starfsáætlun, breytingartillaga stjórnar
  3. Skýrsla og tillögur C-nefndar
    - Utanríkismál, tillögur um breytingar á áður samþykktum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.
    - Dómsvald, tillögur um breytingar á áður samþykktum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.
  4. Skýrsla og tillögur A-nefndar
    - Mannréttindi, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum áður kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.
  5. Skýrsla B-nefndar

Fylgiskjöl:

    Fundargerð

    15. ráðsfundur - haldinn 1. júlí 2011, kl. 9.30, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Forföll hafði boðað: Ástrós Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og Illugi Jökulsson.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti fimmtudaginn 30. júní 2011 og dagskrá var í samræmi við fundarboð.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

    Fundargerð 14. ráðsfundar, 24. júní, var samþykkt án athugasemda og verður birt á heimasíðu Stjórnlagaráðs.

    2. Starfsáætlun, breytingartillaga stjórnar

    Tillagan felur í sér endurskoðun á starfsáætlun sem samþykkt var á 11. ráðsfundi.

    Greidd voru atkvæði um endurskoðaða starfsáætlun.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Erlingur Sigurðarson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir, Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Enginn.
    Fjarverandi: Andrés Magnússon, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson.

    Tillagan var því samþykkt með 18 atkvæðum.

    3. Skýrsla og tillögur C-nefndar

    3.1 Utanríkismál, tillögur um breytingar á áður samþykktum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Tillögurnar varða þrjú ákvæði (nr. 1-3) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Utanríkismál", sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til afgreiðslu.

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu varaformanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Erlingur Sigurðarson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Katrín Oddsdóttir, Pétur Gunnlaugsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Dögg Harðardóttir, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Pawel Bartoszek og Gísli Tryggvason.

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir, Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Erlingur Sigurðarson, Pétur Gunnlaugsson.
    Sátu hjá: Enginn.
    Fjarverandi: Andrés Magnússon, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fundarhlé. Að loknu hléi tók varaformaður ráðsins við fundarstjórn.

    3.2 Dómsvald, tillögur um breytingar á áður samþykktum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Tillögurnar varða sjö ákvæði (nr. 1-7) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Dómsvald", sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til afgreiðslu.

    Pawel Batroszek, formaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Þorvaldur Gylfason, Þorkell Helgason, Gísli Tryggvason, formaður Stjórnlagaráðs tók aftur við fundarstjórn, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Pétur Gunnlaugsson, Katrín Oddsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Lýður Árnason, Þorvaldur Gylfason, Vilhjálmur Þorsteinsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson og Íris Lind Sæmundsdóttir.

    Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Erlingur Sigurðarson, Gísli Tryggvason, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Eiríkur Bergmann Einarsson.
    Sátu hjá: Enginn.
    Fjarverandi: Andrés Magnússon, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Freyja Haraldsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram komu tvær breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við ákvæði 5. gr. í tillögu C-nefndar um dómsvald. Flutningsmaður: Eiríkur Bergmann Einarsson.
    • Breytingartillaga við ákvæði 7. gr. í tillögu C-nefndar um dómsvald. Flutningsmaður: Þorvaldur Gylfason.

    Breytingartillögum þessum var vísað til C-nefndar, sjá bókun undir lið 6 hér á eftir.

    Fundarhlé.

    4. Skýrsla og tillögur A-nefndar

    4.1 Mannréttindi, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum áður kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Tillögurnar varða sextán ákvæði (nr. 1-2, 4-5, 11, 13-14, 17-18, 21, 24, 28-32) í þeim kafla áfangaskjalsins sem ber yfirskriftina „Mannréttindi"), sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til afgreiðslu.

    Örn Bárður Jónsson, varaformaður verkefnanefndar A, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu varaformanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Ari Teitsson, Pétur Gunnlaugsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Íris Lind Sæmundsdóttir, Pawel Bartoszek, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Freyja Haraldsdóttir, Þorkell Helgason, Andrés Magnússon, Þorvaldur Gylfason og Gísli Tryggvason.

    Fundarhlé.

    Varaformaður tók við fundarstjórn eftir hlé og formaður Stjórnlagaráðs vék af fundi.

    Að loknu hléi var fundi fram haldið og umræður hófust að nýju. Til máls tók Lýður Árnason.

    Örn Bárður Jónsson, varaformaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur A-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson.
    Fjarverandi: Ástrós Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Salvör Nordal.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram komu tvær breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við ákvæði 3. mgr. 29. gr. í tillögu A-nefndar um mannréttindi. Flutningsmenn: Ari Teitsson og Ómar Þorfinnur Ragnarsson.
    • Breytingartillaga við ákvæði 14. og 29. gr. í tillögu A-nefndar um mannréttindi. Flutningsmaður: Andrés Magnússon.

    Breytingartillögum þessum var vísað til A-nefndar, sjá bókun undir lið 6 hér á eftir.

    5. Skýrsla B-nefndar

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust en enginn fulltrúa kvaddi sér hljóðs.

    6. Næsti ráðsfundur

    Í lok fundar fór fundarstjóri yfir þær breytingartillögur sem fram höfðu komið á fundinum, alls fjórar talsins, sbr. bókanir undir liðum 3.2 og 4.1 hér að framan.

    Boðað verður til næsta ráðsfundar með dags fyrirvara, í samræmi við starfsreglur ráðsins.


    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.20.


    Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir.