14. fundur stjórnar

16.06.2011 16:30

Dagskrá:
  1. Fundargerðir síðustu funda lagðar fram til samþykktar
  2. Staða nefndastarfa
  3. Fyrirkomulag og dagskrá næstu viku (20.-24. júní)
  4. Önnur mál

Fundargerð

14. fundur stjórnar - haldinn 16. júní 2011, kl. 16.30, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

Mætt voru: Salvör Nordal, formaður Stjórnlagaráðs, Ari Teitsson, varaformaður, Silja Bára Ómarsdóttir, formaður verkefnanefndar A, Vilhjálmur Þorsteinsson, varaformaður verkefnanefndar B, og Pawel Bartoszek, formaður verkefnanefndar C. Jafnframt sátu fundinn varaformenn verkefnanefnda A og C, nánar tiltekið Örn Bárður Jónsson og Íris Lind Sæmundsdóttir.

Forföll hafði boðað Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B.

Þá sátu fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson framkvæmdastjóri og Sif Guðjónsdóttir aðallögfræðingur.

Boðað var til fundarins með tölvupósti 15. júní.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerðir síðustu funda lagðar fram til samþykktar

Fundargerðir 12. og 13. stjórnarfundar voru lagðar fram til kynningar.

2. Staða nefndastarfa

Fyrirsvarsmenn nefnda gerðu grein fyrir umræðum sem farið hefðu fram og skipulagi áframhaldandi vinnu, þar á meðal forgangsröðun.

3. Fyrirkomulag og dagskrá næstu viku (20.-24. júní)

Rætt var um fyrirkomulag funda í næstu viku. Nefndafundir verði fyrir hádegi, opnir fundir eftir hádegi og ráðsfundur á föstudegi, kl. 9.30. Enginn kaffifundur verður haldinn á undan ráðsfundi. Farið var yfir dagskráráætlun og hún samþykkt.

4. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

5. Næsti fundur

Formaður boðar til næsta fundar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.35.

Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir