13. ráðsfundur

16.06.2011 10:00

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Skýrsla og tillögur B-nefndar
    - Sveitarfélög, tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar
    - Umboðsmaður, tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar
  3. Skýrsla og tillögur C-nefndar
    - Utanríkismál, tillögur sem kynntar voru á 11. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal
    - Lýðræðisleg þátttaka almennings, tillögur sem kynntar voru á 12. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal. Einnig lögð fram til kynningar tillaga um nýjan texta í sama kafla.
  4. Skýrsla A-nefndar

Fylgiskjöl:

    Fundargerð

    13. ráðsfundur - haldinn 16. júní 2011, kl. 10.00, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti miðvikudaginn 15. júní 2011 og dagskrá var í samræmi við fundarboð.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

    Fundargerð 12. ráðsfundar, 9. júní, var samþykkt án athugasemda og verður birt á heimasíðu Stjórnlagaráðs.

    2. Skýrsla og tillögur B-nefndar

    2.1 Sveitarfélög, tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar

    Tillögurnar varða fjögur ákvæði (nr. 1-4) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Sveitarfélög", sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til kynningar (í því er einnig að finna tillögu undir lið 2.2 hér á eftir).

    „Stjórnsýsla og eftirlit", sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til kynningar (í því er einnig að finna tillögur undir lið 2.1 hér að framan).

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Eiríkur Bergmann Einarsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pétur Gunnlaugsson, Þorvaldur Gylfason, Vilhjálmur Þorsteinsson, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Íris Lind Sæmundsdóttir, Dögg Harðardóttir, Katrín Oddsdóttir, Gísli Tryggvason og Pawel Bartoszek.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Fundarhlé.

    3. Skýrsla og tillögur C-nefndar

    3.1 Utanríkismál, tillögur sem kynntar voru á 11. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal

    Tillögurnar varða þrjú ákvæði (nr. 1-3) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina Utanríkismál, sjá fylgiskjal með fundargerð. Tillögurnar voru lagðar fram til afgreiðslu.

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Pétur Gunnlaugsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Gísli Tryggvason, Ari Teitsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Katrín Oddsdóttir, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Silja Bára Ómarsdóttir, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Andrés Magnússon og Lýður Árnason.

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Pétur Gunnlaugsson.
    Fjarverandi: Enginn.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 24 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram komu fjórar breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við ákvæði 1. gr. í tillögu C-nefndar um utanríkismál. Flutningsmaður: Gísli Tryggvason.
    • Breytingartillaga við ákvæði 3. mgr. 1. gr. í tillögu C-nefndar um utanríkismál. Flutningsmenn: Katrín Oddsdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir.
    • Breytingartillaga við ákvæði 3. gr. í tillögu C-nefndar um utanríkismál. Flutningsmenn: Katrín Oddsdóttir og Lýður Árnason.
    • Breytingartillaga við ákvæði 3. gr. í tillögu C-nefndar um utanríkismál. Flutningsmenn: Lýður Árnason og Pétur Gunnlaugsson.

    Breytingartillögum þessum var vísað til C-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    3.2 Lýðræðisleg þátttaka almennings, tillögur sem kynntar voru á 12. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal. Einnig lögð fram til kynningar tillaga um nýjan texta í sama kafla

    Tillögurnar varða tvö ákvæði (nr. 1-2) til afgreiðslu og tvö ákvæði til kynningar (nr. 3 og ónúmerað undir fyrirsögninni „Málskot forseta") í kaflanum „Lýðræðisleg þátttaka almennings", sjá fylgiskjal með fundargerð.

    Pawel Barotszek, formaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Þorkell Helgason, Erlingur Sigurðarson og Vilhjálmur Þorsteinsson.

    Fundarhlé.

    Umræður héldu áfram að loknu fundarhléi og eftirtaldir tóku til máls: Eiríkur Bergmann Einarsson, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Andrés Magnússon, Íris Lind Sæmundsdóttir, Ari Teitsson og Lýður Árnason.

    Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Eiríkur Bergmann Einarsson.
    Fjarverandi: Guðmundur Gunnarsson, Katrín Fjeldsted, Erlingur Sigurðarson.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 21 atkvæði. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram komu sjö breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við ákvæði 1. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Þorkell Helgason.
    • Breytingartillaga við ákvæði 1. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmenn: Gísli Tryggvason og Eiríkur Bergmann Einarsson.
    • Breytingartillaga við við ákvæði 1.-2. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Eiríkur Bergmann Einarsson.
    • Breytingartillaga við ákvæði 2. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Þorkell Helgason.
    • Breytingartillaga við ákvæði 2. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Katrín Oddsdóttir.
    • Breytingartillaga við ákvæði 2. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmenn: Andrés Magnússon og Lýður Árnason.
    • Breytingartillaga við 3. gr. í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmenn: Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Katrín Oddsdóttir, Silja Bára Ómarsdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson.

    Breytingartillögum þessum var vísað til C-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    4. Skýrsla A-nefndar

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður verkefnanefndar A, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust en enginn fulltrúi óskaði eftir að taka til máls.

    5. Næsti ráðsfundur

    Í lok fundar fór fundarstjóri yfir þær tvær breytingartillögur sem fram höfðu komið á fundinum, alls ellefu talsins, sbr. bókun undir liðum 3.1 og 3.2 hér að framan.

    Boðað verður til næsta ráðsfundar með dags fyrirvara, í samræmi við starfsreglur ráðsins.

    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.15.

    Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir