10. ráðsfundur

26.05.2011 13:00

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Skýrsla og tillögur B-nefndar
    Tillögur frá 9. ráðsfundi um breytingar á áfangaskjali (Eftirlit Alþingis o.fl.) lagðar fram til afgreiðslu
    Tillögur um nýjan texta í áfangaskjal (Um alþingismenn og störf Alþingis) lagðar fram til kynningar
    Umræður um forsetaræði og þingræði
  3. Skýrsla C-nefndar
  4. Skýrsla og tillögur A-nefndar
    Tillögur að síðari hluta mannréttindakafla lagðar fram til kynningar í áfangaskjal

Fylgiskjöl:


    Fundargerð

    10. ráðsfundur - haldinn 26. maí 2011, kl. 13.00, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Forföll höfðu boðað Pétur Gunnlaugsson og Þorkell Helgason.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti miðvikudaginn 25. maí 2011 og dagskrá í samræmi við fundarboð að öðru leyti en því að tillaga A-nefndar, undir lið 4, er til kynningar en ekki afgreiðslu.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
    Fundargerð 9. ráðsfundar, 19. maí, var samþykkt án athugasemda og verður birt á heimasíðu Stjórnlagaráðs.

    2. Skýrsla og tillögur B-nefndar

    2.1 Tillögur frá 9. ráðsfundi um breytingar á áfangaskjali (Eftirlit Alþingis o.fl.) lagðar fram til afgreiðslu

    Tillögurnar varða sjö ákvæði (nr. 10-16) um eflingu löggjafarvalds gagnvart framkvæmdarvaldi, sjá fylgiskjal með fundargerð. Þær voru kynntar á 9. ráðsfundi og nú lagðar fram til afgreiðslu, lítillega breyttar.

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, kynnti skjalið og að því loknu gaf fundarstjóri orðið laust. Vilhjálmur Þorsteinsson, varaformaður nefndarinnar, tók til máls.

    Tillaga B-nefndar var tekin til afgreiðslu og greidd um það atkvæði hvort hún færi svo inn í áfangaskjal.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Enginn.
    Fjarverandi: Pétur Gunnlaugsson og Þorkell Helgason.

    Tillagan var því samþykkt inn í áfangaskjal, með 23 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    2.2 Tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar (Um alþingismenn og störf Alþingis)

    Tillögurnar varða alls þrettán ákvæði (nr. 17-29) um alþingismenn og störf Alþingis, stjórnarmyndun og vantraust, sjá fylgiskjal með fundargerð. Þær voru lagðar fram til kynningar.

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir ellefu fyrstu ákvæðum tillögunnar (nr. 17-27). Þau fjalla um alþingismenn og störf Alþingis.

    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Vilhjálmur Þorsteinsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Erlingur Sigurðarson, Katrín Oddsdóttir, Gísli Tryggvason, Þorvaldur Gylfason, Silja Bára Ómarsdóttir, Íris Lind Sæmundsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Dögg Harðardóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Gísli Tryggvason, Pawel Bartoszek, Örn Bárður Jónsson, Erlingur Sigurðarson, Illugi Jökulsson og Katrín Fjeldsted.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    2.3 Umræður um forsetaræði og þingræði

    Tvö síðustu ákvæðin í tillögu B-nefndar, sem til kynningar var á fundinum og fjallað var um að hluta undir lið 2.2, varða stjórnarmyndun og vantraust (ákvæði nr. 28-29).

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir ákvæðunum og hóf með því umræður um forsetaræði og þingræði.

    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Gísli Tryggvason, Þorvaldur Gylfason, Vilhjálmur Þorsteinsson, Eiríkur Bergmann Einarsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Erlingur Sigurðarson.

    Stutt fundarhlé.

    Umræðum var haldið áfram að loknu hléi og eftirtaldir tóku til máls: Katrín Oddsdóttir, Gísli Tryggvason, Pawel Bartoszek, Andrés Magnússon, Lýður Árnason, Eiríkur Bergmann Einarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir, Erlingur Sigurðarson og Þórhildur Þorleifsdóttir. Mælendaskrá var lokað þegar Þorvaldur Gylfason lauk máli sínu.

    Ómar Þorfinnur Ragnarsson vék af fundi kl. 15.53.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Á fundinum kom fram breytingartillaga frá Ómari Ragnarssyni og Þorvaldi Gylfasyni við 28. gr. í tillögu B-nefndar um stjórnarmyndun. Tillögunni var vísað til B-nefndar.

    3. Skýrsla C-nefndar

    Pawel Bartoszek, formaður verkefnanefndar C, flutti yfirlit yfir störf nefndarinnar.

    Í máli hans kom meðal annars fram sú útskýring að tillaga nefndarinnar um svokallaða Lögréttu, sem kynnt var á 7. ráðsfundi, stæði enn inni í áfangaskjali á vef Stjórnlagaráðs. Nefndin teldi hins vegar rétt að fella hana þaðan, sbr. samþykkt tillögu C-nefndar á 9. ráðsfundi. Engar athugasemdir komu fram við þetta.

    Fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu C-nefndar og eftirtaldir fulltrúar tóku til máls: Gísli Tryggvason, Silja Bára Ómarsdóttir, Ari Teitsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Katrín Fjeldsted, Guðmundur Gunnarsson, Dögg Harðardóttir og Arnfríður Guðmundsdóttir. Mælendaskrá var lokað þegar Vilhjálmur Þorsteinsson lauk máli sínu.

    Þorvaldur Gylfason vék af fundi kl. 17.02.
    Freyja Haraldsdóttir vék af fundi kl. 17.08.

    Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, fékk orðið og fjallaði meðal annars um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Fundi frestað

    Fundarstjóri gerði grein fyrir því kl. 17.30 að fundi Stjórnlagaráðs væri frestað til föstudagsins 27. maí, kl. 9.30. Þá verður dagskrá fram haldið, nánar tiltekið skýrslu og tillögum A-nefndar, undir lið 4.

    ____________


    10. ráðsfundur - fram haldið 27. maí 2011, kl. 9.30, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Forföll höfðu boðað: Ari Teitsson, Freyja Haraldsdóttir og Pétur Gunnlaugsson.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    4. Skýrsla og tillögur A-nefndar

    4.1 Tillögur að síðari hluta mannréttindakafla lagðar fram til kynningar í áfangaskjal

    Tillögurnar varða ellefu ákvæði (nr. 15-25) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Mannréttindi", sjá fylgiskjal með fundargerð. Þær voru lagðar fram til kynningar.

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður verkefnanefndar A, gerði grein fyrir tillögunum.

    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Vilhjálmur Þorsteinsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Eiríkur Bergmann Einarsson, Þorvaldur Gylfason, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted og Þorkell Helgason.

    Stutt fundarhlé.

    Að loknu fundarhléi var umræðum haldið áfram og til máls tóku: Gísli Tryggvason, Lýður Árnason, Andrés Magnússon, Pawel Bartoszek, Arnfríður Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Örn Bárður Jónsson, Lýður Árnason og Erlingur Sigurðarson.

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Á fundinum kom fram breytingartillaga Pawels Bartoszek við 15., 16., 18. og 19. gr. í tillögu A-nefndar. Tillögunni var vísað til A-nefndar.

    5. Næsti ráðsfundur

    Í lok fundar fór fundarstjóri yfir þær breytingartillögur sem fram höfðu komið á fundinum, sbr. bókanir undir liðnum 4.1 hér að framan.

    Næsti fundur Stjórnlagaráðs verður haldinn föstudaginn 3. júní, kl. 10.00. Dagskrá verður send út síðar.

    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.30.

    Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir.