9. ráðsfundur

19.05.2011 13:00

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Skýrsla og tillögur C-nefndar
    Tillögur um breytingar á áfangaskjali (Dómstólakafla frá 7. ráðsfundi) lagðar fram til afgreiðslu
  3. Skýrsla A-nefndar
  4. Skýrsla og tillögur B-nefndar
    Tillögur um nýjan texta í áfangaskjali lagðar fram til kynningar (Þingmál, eftirlitshlutverk Alþingis)
    Tillögur frá 8. ráðsfundi um texta í áfangaskjali lagðar fram til afgreiðslu (Efling löggjafarvalds)
  5. Stefnuræður fulltrúa
    Dögg Harðardóttir
    Þorkell Helgason

Fylgiskjöl:

    Fundargerð

    9. ráðsfundur - haldinn 19. maí 2011, kl. 13.00, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason og Örn Bárður Jónsson.
    Forföll höfðu boðað Arnfríður Guðmundsdóttir, Þorvaldur Gylfason og Þórhildur Þorleifsdóttir.
    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.
    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.
    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti miðvikudaginn 18. maí 2011 og dagskrá í samræmi við fundarboð.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

    Fundargerð 8. ráðsfundar, 12. maí, var samþykkt án athugasemda og verður birt á heimasíðu Stjórnlagaráðs.

    2. Skýrsla og tillögur C-nefndar

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar og fjallaði um þá tillögu sem fyrir fundinum lá.

    2.1 Tillögur um breytingar á áfangaskjali (Dómstólakafla frá 7. ráðsfundi) lagðar fram til afgreiðslu
    Tillögurnar varða fyrstu sjö ákvæðin í kafla um dómsvald, sjá fylgiskjal með fundargerð. Þær voru kynntar á 7. ráðsfundi og voru nú lagðar fram til afgreiðslu, nokkuð breyttar.
    Varaformaður nefndarinnar fór yfir tillögurnar, athugasemdir og breytingar sem gerðar hefðu verið eftir að skjalið var upphaflega kynnt. Auk þess kom fram að C-nefnd leggur til að B-nefnd taki tiltekin atriði til athugunar í sinni vinnu, í samhengi við tillögu C-nefndar um dómsvald.
    Að lokinni framsögu varaformanns C-nefndar lét fundarstjóri þess getið að tillögurnar yrðu ræddar í heild sinni og síðan bornar undir atkvæði. Að svo búnu var orðið gefið laust og eftirtaldir tóku til máls: Vilhjálmur Þorsteinsson, Gísli Tryggvason, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pétur Gunnlaugsson og Örn Bárður Jónsson.

    Íris Lind Sæmundsdóttir, varaformaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Lögð var fram ein breytingartillaga við tillögur C-nefndar, nánar tiltekið 7. gr., og var henni vísað til nefndarinnar. Tillagan fjallar um skipan Hæstaréttar í tilteknum málum og hana fluttu þau Ómar Þorfinnur Ragnarsson og Katrín Oddsdóttir, sjá fylgiskjal með fundargerð. Fyrstnefndur flutningsmaður fékk orðið og gerði nokkra grein fyrir tillögunni.

    Tillaga C-nefndar var tekin til afgreiðslu og greidd um það atkvæði hvort hún færi svo inn í áfangaskjal.

    Atkvæði féllu svo: 
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn
    Sátu hjá: Enginn
    Fjarverandi: Arnfríður Guðmundsdóttir, Þorvaldur Gylfason og Þórhildur Þorleifsdóttir.

    Tillagan var því samþykkt inn í áfangaskjal, með 22 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    4. Skýrsla A-nefndar

    Örn Bárður Jónsson, varaformaður verkefnanefndar A, flutti yfirlit yfir störf nefndarinnar.
    Fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu A-nefndar en enginn fulltrúa óskaði eftir að taka til máls.

    5. Skýrsla og tillögur B-nefndar

    2.1 Tillögur um nýjan texta í áfangaskjali lagðar fram til kynningar (Meðferð þingmála, eftirlitshlutverk Alþingis o.fl.)

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar frá síðasta ráðsfundi og fjallaði um þær tillögur nefndarinnar sem fyrir fundinum lágu til kynningar.
    Tillögurnar varða meðferð þingmála, þingrof, eftirlitshlutverk Alþingis og fleira, í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Hlutverk og störf Alþingis", sjá fylgiskjal með fundargerð.
    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Þorkell Helgason, Illugi Jökulsson, Andrés Magnússon, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Guðmundur Gunnarsson, Andrés Magnússon, Gísli Tryggvason og Vilhjálmur Þorsteinsson.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Stutt fundarhlé.

    2.2 Tillögur frá 8. ráðsfundi um texta í áfangaskjali lagðar fram til afgreiðslu (Efling löggjafarvalds)
    Tillögurnar varða eflingu löggjafarvalds gagnvart framkvæmdarvaldi, sjá fylgiskjal með fundargerð. Þær voru kynntar á 8. ráðsfundi og voru nú lagðar fram til afgreiðslu, nokkuð breyttar.
    Formaður nefndarinnar gerði grein fyrir tillögunum, athugasemdum og breytingum sem gerðar hefðu verið á skjalinu síðan það var kynnt.
    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Lýður Árnason, Pawel Bartoszek, Katrín Oddsdóttir, fundarstjóri og Gísli Tryggvason.
    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.
    Tillaga B-nefndar var tekin til afgreiðslu og greidd um það atkvæði hvort hún færi svo inn í áfangaskjal.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Lýður Árnason
    Sátu hjá: Enginn
    Fjarverandi: Arnfríður Guðmundsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Illugi Jökulsson, Þorvaldur Gylfason og Þórhildur Þorleifsdóttir.

    Tillagan var því samþykkt inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    6. Stefnuræður fulltrúa

    6.1 Dögg Harðardóttir
    Dögg Harðardóttir flutti ræðu sína.

    6.1 Þorkell Helgason
    Þorkell Helgason flutti ræðu sína.

    7. Næsti ráðsfundur

    Í lok fundar lét fundarstjóri getið um fram komna breytingartillögu frá Ómari Þorfinni Ragnarssyni og Katrínu Oddsdóttur, sbr. bókun í fundargerð undir lið 2.1 hér að framan. Breytingartillögu þessari var vísað til C- nefndar.

    Þá var þess farið á leit í tillögum C-nefndar, sbr. lið 2.1 hér að framan, að B-nefnd taki tiltekin atriði til athugunar.

    Næsti reglulegi fundur Stjórnlagaráðs verður haldinn fimmtudaginn 26. maí, kl. 13.00. Dagskrá verður send út síðar.

    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.53.
    Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir