Skjalasafn
Litróf jafnræðisreglna
Páll Hreinsson hæstaréttardómari fjallar um inntak jafnræðisreglna í íslensku lagaumhverfi, þar á meðal 65. gr. stjórnarskrárinnar. Greinin birtist afmælisriti Gunnars G. Schram árið 2002.
Hlaða niður skjaliPrentfrelsi og nafnleynd
Grein eftir Ólaf Jóhannesson þáverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Úlfljóti, tímariti laganema árið 1969. Fjallar Ólafur um þáverandi tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar (prentfrelsi)og nafnleyndarrétt höfunda efnis í blöðum og ritum á þeim tíma.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá Bandaríkjanna
Stjórnarskrá Bandaríkjamanna má finna hér í íslenskri þýðingu. Stjórnarskráin er frá 1787 og er sú elsta í heiminum. Henni hefur aldrei verið breytt en þess í stað hafa verið samþykktir fjöldinn allur af viðaukum við stjórnarskránna. Þekktasti viðaukinn er ,,Réttindaskráin" (e. Bill of Rights) en hún hefur að geyma mannréttindaákvæði.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá Noregs
Stjórnarskrá Norðmanna í íslenskri þýðingu. Hún er elsta stjórnarskráin á Norðurlöndunum samþykkt árið 1814. Hún er stutt og laggóð, aðeins 112 greinar, en af þeim hafa níu greinar verið felldar úr gildi, svo að 103 greinar standa eftir. Henni hefur nokkrum sinnum verið breytt, m.a. sett í ítarlegt tjáningarfrelsisákvæði og ákvæði um nýtingu náttúruauðlinda.
Hlaða niður skjaliBlaðagrein - Þjóðin semur grundvallarlögin
II. hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um endurskoðun á stjórnarskránni, 13. febrúar 2009.
Hlaða niður skjaliBlaðagrein - Lýðræðishalli af mannavöldum
III. hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um endurskoðun á stjórnarskránni, 19. febrúar 2009. í þessum hluta er fengist við kosningarlög og kjördæmaskipan.
Hlaða niður skjaliBlaðagrein - Stjórnlagaþings bíða ærin verk
IV. hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um endurskoðun á stjórnarskránni, 20. febrúar 2009. Í þessum hluta er rætt við stjórnskipunarspekinga, sem veita álit sitt á brýnustu verkefnum við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliUm endurskoðun stjórnarskrárinnar
Grein frá Gunnari G. Schram fyrrv. prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Tímariti lögfræðinga. Gunnar fjallar um viðhorf sín til endurskoðunar á stjórnarskránni árið 1977. Mörg af þeim atriðum sem Gunnar ræðir um að sé ábótavant hafa ekki tekið breytingum frá því grein hans var skrifuð.
Hlaða niður skjaliVerndar stjórnarskráin verkfallsréttinn?
Grein frá Ástráði Haraldsyni sem birtist í Tímariti lögfræðinga veturinn 2003. Ástráður fjallar um hvert sé inntak þeirrar verndar sem athafnfrelsi stéttarfélaga er búið með ákvæði 74. gr. stjórnarskrárinnar um félagafrelsi. Einkanlega er reynt að leiða í ljós hvort með ákvæðinu séu settar skorður við heimildum stjórnvalda til að hafa afskipti af beintingu verkfallsréttar stéttarfélaga.
Hlaða niður skjaliSjálfstjórn sveitarfélaga
Grein eftir Trausta Fannar Valsson lektor við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um inntak 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar sem fjallar um sveitarfélög. Með ákvæðinu er lagður stjórnskipulegur grundvölllur að tilvist sveitarfélaga hér á landi en frekari þýðing ákvæðisins er næsta óljós. Í greininni reynir Trausti þó að varpa ljósi hvað felst í ákvæðinu og hvert sé inntak sjálfstjórnar sveitarfélaganna.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá Þýskalands
Grundvallarlög sambandsríkisins Þýskalands samþykkt árið 1949. Stjórnarskráin er á íslensku, en í óstaðfestri þýðingu.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá Danmerkur
Dönsku grundvallarlögin d. grunnloven, eða stjórnarskráin, frá árinu 1953. Skjalið er á íslensku en í óstaðfestri þýðingu.
Hlaða niður skjaliEuropean v. National Constitutions
Grein sem birtist í European Constitutional Law Review árið 2005. í greininni er gerð grein fyrir hugmyndinni um stjórnarskrá Evrópu (e. Constitution of Europe), sem stóð til að samþykkja innan Evrópusambandsins og átti að gilda fyrir öll aðildarríkin í stað Rómarsáttmálans. Stjórnarskráin var felld með eftirminnilegum hætti af Bretum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Árið 2009 tók Lissabon sáttmálinn gildi, sem hefur að hluta til að geyma svipuð ákvæði og stóð til að væru í stjórnarskrá Evrópu.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá Bandaríkjanna
Stjórnarskrá Bandaríkjanna frá árinu 1787 í íslenskri óstaðfestri þýðingu.
Hlaða niður skjaliStjórnarskráin og refsiábyrgð (síðari hluti) - meginreglan um skýrleika refsiheimilda
Grein eftir Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2005. Greinin er síðari hluti af skýringu á 69. gr. stjskr. og tekur Róbert fyrir meginregluna um skýrleika refsiheimilda.
Hlaða niður skjaliStjórnarskráin og refsiábyrgð (fyrri hluti) - grunnreglan um lögbundnar refsiheimildir
Grein eftir Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2004. Róbert fjallar um inntak 1. mgr. 69. gr. stjskr. en ákvæðið áskilur að engum verði gert að sæta refsingu án laga. Ákvæðið, sem áskilur lögbundar refsiheimildir, gerir því kröfur bæði til löggjafans við mótun og setningu refsiákvæða svo og til dómstóla við túlkun og beitingu slíkra ákvæða í réttarframkvæmd.
Hlaða niður skjaliHverjir eiga fiskinn? - Nokkrar hugleiðingar um siðfræði eignarréttarins
Grein eftir Atla Harðarsson frá árinu 1992 sem birtist í Skírni. Atli rannsakar þá ályktun, að fiskurinn í sjónum sé sameign íslensku þjóðarinnar. Í fyrsta lagi skoðar hann forsendur hennar og í annan stað fjallar Atli almennt um eignarnám og eignarrétt á náttúrugæðum og skýrir hvaða reglur eigi að gilda þar um. Að lokum fer Atli stuttlega yfir þá kenningu að þjóðinni beri réttur á leigu eða arði frá þeim sem nýta fiskistofnana og af hverju sú kenning fæst ekki staðist.
Hlaða niður skjaliStraumhvörf í kirkjurétti
Grein eftir Pál Sigurðsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands þar sem fjallað er um nýja löggjöf um þjóðkirkjuna sem stóð til að setja árið 2005. Grein Páls birtist sama ár í Lagaskuggsjá.
Hlaða niður skjaliHinn kennilegi grundvöllur 73. gr. stjórnarskrárinnar
Eiríkur Jónsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um kennilegan eða réttarheimspekilegan grunn tjáningarfrelsisákvæðisins. Grein Eiríks birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2007.
Hlaða niður skjaliStjórnskipunarréttur
Kafli úr bókinni; ,,Um lög og rétt" sem kom út árið 2006. Kaflinn ber heitið ,,Stjórnskipunarréttur" og er skrifaður af Björgu Thorarensen prófessor í lögum við Háskóla Íslands. Kaflinn er ætlaður sem inngangsefni fyrir íslenskan stjórnskipunarrétt.
Hlaða niður skjaliHugleiðingar um réttarstöðu ráðherra
Eiríkur Tómasson fjallar um í grein sinn frá árinu 1994 og birtist í Úlfljóti, Tímariti laganema við Háskóla Íslands, réttarstöðu ráðherra almennt, skipun og lausn ráðherra og valdsvið hans, þ.á.m. um valdsvið ráðherra hvers gagnvart öðrum.
Hlaða niður skjaliSjálfstjórn sveitarfélaga
Grein eftir Jóhann Tómas Sigurðsson lögfræðing sem birtist í Úlfljóti, Tímarit laganema við Háskóla Íslands árið 1999. Jóhann fjallar um inntak 78. gr. stjórnarskrárinnar sem mælir fyrir um sjálfstjórn sveitarfélaga.
Hlaða niður skjaliAlþjóðasamningur um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi
Markmiðið með samningnum um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi er að aðildarlöndin tryggi íbúum sínum grundvallar borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, eins og tjáningarfrelsi og kosningarétt.Ísland fullgilti samninginn árið 1978 og var hann lögfestur árið 2008.
Hlaða niður skjaliAlþjóðsamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi
Alþjóðasamningurinn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (1966) mynd ar ásamt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna (1948) og Alþjóðasamningnum um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi (1966) hina svonefndu Alþjóðlegu réttindaskrá. Í samræmi við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna viðurkenna samningarnir að „… sú hugsjón að menn séu frjálsir og njóti borgaralegs og stjórnmálalegs frelsis, séu óttalausir og þurfi ekki að líða skort, rætist því aðeins að sköpuð verði skilyrði til þess að allir geti notið borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda, jafnt sem efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda.“ Í lok árs 2008 hafði samningurinn verið fullgiltur af 160 ríkjum.
Hlaða niður skjaliLýðræði og stjórnfesta
Grein eftir Gylfa Þ. Gíslason birt í Helgafelli árið 1945 um lýðræði og stjórnfestu.
Hlaða niður skjaliStefnuskrá lýðveldisins: Nokkrar hugleiðingar um stjórnarskrá
Grein eftir Þorvald Þórarinsson sem birtist í Helgafelli 1945.
Hlaða niður skjaliVald forseta sem handhafa framkvæmdarvalds
Grein eftir Björgu Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Greinin var birt árið 2006 í vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Greinin var upphaflega erindi sem flutt var af Björgu á ráðstefnu um forsetaembættið og stjórnarskrána í sögulegu ljósi, sem haldin var 25. mars 2006 af Sagnfræðingafélagi Íslands í samvinnu við stjórnarskrárnefnd.
Hlaða niður skjaliAf öðrum kögunarhóli - Nokkur álitaefni varðandi endurskoðun stjórnarskrárinnar
Grein eftir Þorstein Pálsson sem birtist í Bifröst, riti Háskólans á Bifröst árið 2006. Þorsteinn reifar sín sjónarmið um hvað beri að endurskoða í stjórnarskrá í tilefni þess að skipuð var nefnd árið 2005 til þess verkefnis.
Hlaða niður skjaliSamhent stjórnsýsla
Ný skýrsla unnin af nefnd sem skipuð var til að endurskoða lög um Stjórnarráð Íslands. Í skýrslunni er m.a. lagt til að hlutverk ráðherra sé skilgreint á skýran hátt í lögum um Stjórnarráð Íslands og eftir atvikum lögum um ráðherraábyrgð. Þá verði kveðið á um samskipti ráðherra við embættismenn sem og hlutverk ráðuneytisstjóra verði betur skilgreint og afmarkað. Að mati nefndarinnar er þörf á að tryggja betur samheldni innan ríkisstjórna, m.a. í því skyni að auðvelda þeim að taka erfiðar ákvarðanir. Þetta eru nokkur af þeim áhugaverðu atriðum sem reifuð er í skýrslunni en hún er ítarlega og greinargóð um 90 bls. að lengd.
Hlaða niður skjaliUm ráðherraábyrgð og landsdóm
Nýlega birt grein í Skírni eftir Sigurð Líndal. Kemst hann að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að réttarfarsreglur landsdómslaga hafi ekki þótt í fullu samræmi við nútímaviðhorf til sakamálaréttarfars, megi ætla með tilvísun til nýrra laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sem eru í lögunum að landsdómur hafi öll úrræði til að haga málsmeðferð þannig að mannréttindi séu tryggð.
Hlaða niður skjaliFrumvarp til stjórnarskipunarlaga - persónukjör
Þingmannafrumvarp lagt fram af Kristni H. Gunnarsyni á löggjafarþingi 2008-2009. Frumvarpið mælir fyrir um nokkurs konar blandaða kosningarleið, persónukjörs og stjórnmálasamtaka, þannig að hver kjósandi fái tvö atkvæði annað til að kjósa framboðslista og hitt til að kjósa frambjóðanda.
Hlaða niður skjaliSamband íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar
Lokaverkefni Sunnu Axelsdóttur við Háskólann á Akureyri sem fjallar um lagalegan grundvöll sambands íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar. Sunna fer yfir stöðuna hér á landi, sem og hvernig fyrirkomulag er háttað á Norðurlöndunum með sérstöku tilliti til sjálfstjórnar kirknanna.
Hlaða niður skjaliVernd verkfallsréttarins skv. 74. gr. stjórnarskrárinnar
Elín Blöndal lögfræðingur fjallar um verkfallsréttinn í fjórum alþjóðasáttmálum. Titill greinarinnar vísar til þess að Elín reynir að varpa ljósi á vernd 74. gr. stjórnarskráinnar m.a. í ljósi niðurstöðu í dómi Hæstaréttar frá 14. nóvember 2002. Í málinu reyndi á stjórnskipulegt gildi löggjafar, er mælti fyrir um bann við verkföllum fiskimanna, andspænis verkfallsréttinum sem nýtur stjórnarskrárverndar 74. gr. stjskr. Greinin birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2003.
Hlaða niður skjaliStjórnsýsludómstólar á Íslandi
Jana Friðfinnsdóttir lögfræðingur fjallar um hvort rétt sé að setja á stofn stjórnsýsludómstóla, kosti og galla þess m.a. hvort réttarfarshagræði sé fólgið í slíkum dómstólum. Greinin birtist í Úlfljóti, tímariti laganema við Háskóla Íslands 2006.
Hlaða niður skjaliKirkjan, trúfrelsið og jafnrétti trúfélaga
Steingrímur Gautur Kristjánsson fjallar um réttarreglur sem gilda um íslensku þjóðkirkjuna og samskipti trúfélaga hér á landi og í Evrópu. Greinin birtist í afmælisriti Guðmundur Ingvi Sigurðsson áttræður árið 2002.
Hlaða niður skjaliStaða utanríkismálanefndar Alþingis í ljósi Íraksmálsins
Bjarni Már fjallar um stöðu og hlutverk utanríkismálanefndar Alþingis. Bjarni kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að ef styrkja eigi hlutverk nefndarinnar mætti mögulega tengja hana við núverandi 21. gr. stjórnarskrárinnar. Greinin birtist í vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla árið 2006.
Hlaða niður skjaliTjaldað til einnar nætur. Uppruni bráðabirgðastjórnarskrárinnar.
Grein frá Guðna Th. Jóhannssyni sagnfræðingi sem birtist í vefritinu stjórnmál og stjórnsýsla þann 30. júní síðastliðinn.
Hlaða niður skjaliTillaga um mannréttindi í stjórnarskrá
Grein eftir Guðmund Alfreðsson prófessor í lögum við Háskólann í Lundi. Í grein sinni, sem birt var í Skírni, leggur Guðmundur fram tillögu um nýjan upphafskafla íslensku stjórnarskrárinnar. Tillagan snýst aðallega um mannréttindi, og hvílir á þjóðréttarlegum skuldbindingum ríkisins.
Hlaða niður skjaliStaða og áhrif mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna að íslenskum rétti
Grein eftir Björgu Thorarensen sem birtist í ritinu Mannréttindasamningar Sameinuðu þjóðanna árið 2009. Björg fjallar um áhrif alþjóðamannréttindasamninga, einkum Sameinuðu þjóðanna, á þróun íslensks réttar, einkum á síðustu tveimur áratugum.
Hlaða niður skjaliFriðhelgi einkalífs og fjölskyldu og réttur til að stofna til hjúskapar
Björg Thorarensen prófessor í stjórnskipunarrétti fjallar um vernd friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. Mannréttindsáttmála Evrópu. Greinin birtist í fræðiritinu Mannréttindasáttmáli Evrópu: meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt árið 2005.
Hlaða niður skjaliTrúarbrögð og mannréttindi
Páll Sigurðsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um trúfrelsi og jafnræði trúfélaga á Íslandi. Greinin birtist í Lagaskuggsjá árið 2004.
Hlaða niður skjaliEinkaréttaráhrif Mannréttindasáttmála Evrópu og skyldur ríkja til athafna samkvæmt sáttmálanum
Grein eftir Björgu Thorarensen prófessor í lögum sem birtist í Afmælisriti Gauks Jörundssonar árið 1994. Björg fjallar um einkaréttaráhrif Mannréttindasáttmála Evrópu, en með því er átt við hvort einstaklingar eru bundnir af ákvæðum sáttmálans eða hvort hann hefur áhrif á lögskipti milli einstaklinga.
Hlaða niður skjaliTjáningarfrelsi og bann við útbreiðslu kynþáttafordóma
Björg Thorarensen prófessor fjallar um bann við því að menn tjái opinberlega skoðanir sínar sem lýsa kynþáttahatri og kynþáttafordómum og hvernig það samrýmist grundvallarreglunni um vernd tjáningarfrelsis í lýðræðisþjóðfélagi. Greinin birtist í Úlfljóti, tímariti laganema við Háskóla Íslands, árið 2002.
Hlaða niður skjaliForseti Íslands og synjunarvaldið
Grein eftir Sigurð Líndal prófessor emeritus sem fjallar um túlkun á 26. gr. stjórnarskráinnar er varðar synjunarvald forseta eða málskotsrétt hans til þjóðarinnar er hann neitar að undirrita lög.
Hlaða niður skjaliRéttarreglur um íslenska tungu
Grein eftir Þór Vilhjálmsson sem birtist í afmælisriti Sigurðar Líndal, Líndælu. Fjallar hann um lagareglur og skyldar reglur, sem mæla fyrir um notkun móðurmálsins.
Hlaða niður skjaliEndurskoðun stjórnarskrárinnar
Grein eftir Sigurð Líndal þar sem hann lýsir sínum viðhorfum til endurskoðunar eða breytinga á stjórnarskránni.
Hlaða niður skjaliÞjóðareign - þýðing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar
Bók gefin út af RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál. Í ritinu er að finna ritgerðir eftir höfunda úr ýmsum áttum, um eignarrétt og auðlindir sjávar. Ritið er mjög yfirgripsmikið enda um 160 bls.
Hlaða niður skjaliÞjóðmálaumræðan og þjóðareignin
Grein eftir Helga Áss Grétarsson sérfræðing hjá lagastofnun Háskóla Íslands. Greinin birtist í tímaritinu Ægi árið 2010.
Hlaða niður skjaliHvenær verður minnihluti atkvæða að meirihluta fulltrúa?
Ólafur Þ. Harðarsson prófessor og Inriði H. Indriðason lektor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands fjalla um tengslin á milli atkvæðahlutfalls og stjórnarmeirihluta í skoðanakönnunum og í bæjarstjórnarkosningum 1930-2002. Greinin varðar kosningarkerfið sem við búum við, tengslin á milli prósentutölu fylgis og fulltrúafjöldans o.s.frv.
Hlaða niður skjaliUpplýsingaskylda ráðherra við alþingi
Grein eftir Ásmund Helgason sem birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2009. Ásmundur fjallar um upplýsingarrétt þingmanna andspænis upplýsingaskyldu ráðherra. Upplýsingaréttur þingmanna er m.a. áréttaður í 54. gr. stjórnarskrárinnar þar sem þingmenn geta lagt fram fyrirspurn um tiltekin mál. Stór hluti af verksviði ráðherra snýst um samskipti við Alþingi og þar ber honum að rökstyðja stjórnarathafnir sínar. Þessi samskipti kalla á miðlun upplýsinga úr stjórnsýslunni til Alþingis. Hér flettir Ásmundur upp þeim hnökrum sem eru á framangreindu upplýsingaflæði í dag.
Hlaða niður skjaliUmhverfi og auðlindir - Stefnum við í átt til sjálfbærrar þróunar?
Skýrsla umhverfisráðuneytisins frá 2009 um samspil manns og náttúru, ástand umhverfisþátta hér á landi og í öðrum löndum. Ítarlega er fjallað um sjálfbæra neyslu og framleiðslu og loftlagsbreytingar af mannavöldum.
Hlaða niður skjaliTjáningarfrelsi og skoðanafrelsi - sérstaklega í umræðum um almenn málefni.
Grein eftir Hörð Einarsson sem birtist í afmælisriti Davíðs Oddsonar.
Hlaða niður skjaliUm sameign íslensku þjóðarinnar
Grein eftir Helga Áss Grétarsson sem birtist í Rannsóknir í Félagsvísindum VII árið 2007. Helgi fjallar um hvort nytjastofnar sjávar geti talist sameign þjóðarinnar eður ei.
Hlaða niður skjaliGlærur Ragnhildar Helgadóttur um stjórnarskrá Íslands
Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík hélt örnámskeið um stjórnarskrá lýðveldisins. Hægt er að nálgast glærur frá námskeiðinu hér.
Hlaða niður skjaliPólitískt umboð og ábyrgð ráðherra á Íslandi
Grein eftir Gunnar Helga Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði sem birtist í Rannsóknir í félagsvísindum VI: lagadeild og varðar vald, störf og ábyrgð ráðherra hér á landi.
Hlaða niður skjaliKynning stjórnlaganefndar
Glærur sem stjórnlaganefnd hefur stuðst við í kynningu á endurskoðunarferli stjórnarskrárinnar samkvæmt lögum um stjórnlagaþing nr. 90/2010. Stjórnlaganefnd var að ljúka við fundarröð vítt og breitt um landið. Haldnir voru sjö borgarafundir þar sem ferlið var kynnt og íbúum var gefin kostur á að koma sínum sjónarmiðum sínum um inntak stjórnarskrárinnar á framfæri og fræðast nánar um endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliÞingræði á Íslandi
Grein eftir Bjarna Benediktsson frá árinu 1956 sem birtist í Tímariti lögfræðinga. Fjallar hann um starfsemi Alþingis, starfshætti og ágalla þingræðisins.
Hlaða niður skjaliNý stjórnarskrá fyrir Svíþjóð
Sænsk skýrsla eftirlitsnefndar lýðræðis þar í landi. Í skýrslunni er tekið á flóknum álitaefnum svo sem hvort hægt sé að breyta stjórnarháttum í þróuðum lýðræðisríkjum með endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þá er ennfremur kannað hvort eyða megi vandamálum í samfélagsgerðinni með stjórnarskrárbreytingum. Til dæmis er tekið á því hvort breytingar á stjórnskipan geti komið til móts við óánægju almennings með stjórnmálamenn, en rekstur opinberra stofnana er í höndum þeirra. Pólitík spili stóra rullu við þann reksktur sem hafi valdið vaxandi vantrausti á trúverðugan rekstur þeirra stofnana með almannahagsmuni að leiðarljósi á undanförnum árum og áratugum.
Hlaða niður skjaliEr sjálfbær þróun lagalegt hugtak?
Grein eftir Aðalheiði Jóhannsdóttur sem birtist í Rannsóknir í Félagsvísindum V árið 2004. Greinin fjallar um eitt af lykilhugtökum umhverfisréttarins, sjálfbæra þróun. Höfundur leitast við að skilgreina inntak þess og meðal annars á hvaða forsendum lagareglum verði mótaðar eða gildandi reglum beitt svo að sjálfbærri þróun verði náð.
Hlaða niður skjaliUm afmörkun og endurmat á stjórnskipulegri stöðu forseta Íslands
Ný grein eftir Björgu Thorarensen prófessor í stjórnskipunarrétti um hlutverk og stöðu forseta Íslands.
Hlaða niður skjaliBlaðagrein - Ráðherrarnir út fyrir vegginn
1. hluti af umfjöllun Fréttablaðsins um endurskoðun á stjórnarskránni, 12. febrúar 2009.
Hlaða niður skjaliÞjóðaratkvæðagreiðslur í Evrópu (s. Folkomröstningar i Europa)
Sænsk skýrsla frá árinu 2007 sem hefur að meðal annars að geyma samanburðarrannsókn á þjóðaratkvæðagreiðslum og þjóðarfrumkvæði í Evrópu. Skýrslan er á sænsku og er talsvert yfirgripsmikil eða rúmlega 120 bls.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá og mannréttindi
Sigurður Líndal fyrrv. prófessor við Háskóla Íslands fjallar um mannréttindákvæði stjórnarskrárinnar sem tóku gildi árið 1995. Sigurður setur fram nokkrar tillögur að mannréttindaákvæðum, sem og ákvæði sem fjalla um skyldur borgarana.
Hlaða niður skjaliGuidebook to Direct Democracy
Fræðirit um beint lýðræði, þjóðarfrumkvæði og þjóðaratkvæðagreiðslur. Fjallað er almennt um þróun lýðræðis í Sviss og öðrum Evrópuríkjum.
Hlaða niður skjaliValdheimildir löggjafans og úrskurðarvald dómstóla
Grein eftir Davíð Oddson sem birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2002. Davíð fjallar um mörk löggjafarvalds og dómsvalds í tilefni af dómi Hæstiréttar um tekjutryggingu öryrkja sem gekk árið 2000.
Hlaða niður skjaliNokkur ákvæði í erlendum stjórnarskrám um auðlindir og umhverfisrétt
Hér er að finna stutta samantekt þar sem valið er að handahófi ákvæði í stjórnarskrám annarra ríkja er varða auðlindir, nýtingu þeirra og umhverfisrétt. Nokkrum ákvæði eru fremst í skjalinu í íslenskri þýðingu.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá um hin sérstöku málefni Íslands frá árinu 1874
Fyrsta stjórnarskráin afhent af Kristjáni IX danakonungi á aldarafmæli Íslands árið 1874.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá konungsríkisins Íslands frá árinu 1920
Stjórnarskrá sem Íslendingar fengu árið 1920. Stjórnarskráin var sett í kjölfar sambandslaganna árið 1918, en þá höfðu orðið miklar breytingar á stjórnskipun Íslands.
Hlaða niður skjaliGreinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 97/1995
Greinargerð sem fylgdi frumvarpi til stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995. Með lögunum var mannréttindakafla stjórnarskrárinnar breytt árið 1995. Feril málsins er að finna á heimasíðu Alþingis, sjá hér: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=118&mnr=297
Hlaða niður skjaliVernd viðskiptalegrar tjáningar fyrirtækja
Grein eftir Eirík Jónsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Rannsóknir í félagsvísindum IX: lagadeild. Eiríkur fjallar um þá vernd sem fyrirtæki njóta á grundvelli tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar,sbr. 73. gr.
Hlaða niður skjaliDómarastarfið og meðferð dómsvaldsins
Grein eftir Sigríði Ingvarsdóttur dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Greinin birtist í Lögréttu, Tímariti laganema við Háskólann í Reykjavík árið 2005. Í greininni leitast Sigríður við að skilgreina hugtakið dómsvald, leita eftir hvað sé fólgið í sjálfstæði og hlutleysi dómsvaldsins og ennfremur hverjar séu takmarkanir dómsvaldsins. Þá fjallar Sigríður stuttlega um dómarastarfið.
Hlaða niður skjaliUm stjórnskipulega eignarréttarvernd aflaheimilda
Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins, reynir að svara í grein sinni hvort aflaheimildir verði taldar til eignar í skilningi 72. gr. stjórnarskrárinnar. Skúli kemst að þeirri niðurstöðu að löggjafinn geti breytt núgildandi fyrirkomulagi við fiskveiðistjórn án þess að það leiði til bótaskyldu vegna missis eða skerðingar aflaheimilda. Skúli á hér við beinan eignarrétt í skilningi 72. gr. en tekur ekki afstöðu til annarrar eignarréttarverndar t.d. óbeins eignarréttar. Grein Skúla er skrifuð árið 1997 en lögin hafa ekki breyst í veigamiklum atriðum frá þeim tíma.
Hlaða niður skjaliSynjunarvald forseta
Grein eftir Þór Vilhjálmsson um inntak 26. gr. stjórnarskrárinnar sem birtist í afmælisriti Gauks Jörundssonar árið 1994.
Hlaða niður skjaliDómstólar geta ekki vikið sér undan því að að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum
Grein eftir Kára Hólmar Ragnarsson hdl. sem fjallar um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi í íslenskum rétti. Greinin birtist í Úlfljóti, tímariti laganema við Háskóla Íslands, árið 2009.
Hlaða niður skjaliÁhrif Mannréttindasáttmála Evrópu á vernd tjáningarfrelsis að íslenskum rétti
Björg Thorarenseon prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands fjallar um áhrif Mannréttindasáttmála Evrópu á tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Greinin birtist í Tímarit lögfræðinga árið 2003.
Hlaða niður skjaliSkýrsla Evrópuráðsins um stöðu sveitarfélaga á Íslandi
Skýrsla Evrópuráðsins um stöðu sveitarfélaga hér á landi, sérstaklega í ljósi efnahagshrunsins.
Hlaða niður skjaliHverjar eru sögulegar rætur 26. greinar íslensku stjórnarskrárinnar
Sérfræðingar á sviði stjórnskipunarréttar svara spurningu SÖGU vorið 2010 um umdeilda 26. gr. stjórnarskráinnar. Þeir sem svara eru Eiríkur Tómasson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Eiríkur Bergmann dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Allþingis, Helgi Skúli Kjartansson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, Ragnheiður Kristjánsdóttir aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla Íslands, Ragnhildur Helgadóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Svanur Kristjánsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra.
Hlaða niður skjaliSjálfstæði ráðherra og þingræðisreglan
Grein frá Gunnari Helga Kristinssyni þar sem hann fjallar um hvort sjálfstæði ráðherra, eins og það hefur verið túlkað af íslenskum lögfræðingum, samrýmist þingræðisreglunni. Greinin birtist í vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla veftímarit.
Hlaða niður skjaliFrumvarp með stjórnarskrá lýðveldisins Íslands frá 1944
Frumvarp sem fylgdi með stjórnarskránni þegar hún var lögð fyrir þingið. Stjórnarskráin tók hins vegar nokkrum breytingum í meðförum þingsins m.a. hlutverk og staða forseta.
Hlaða niður skjaliSkýrsla félagsmálaráðherra um sveitarstjórnarmál
Skýrsla um stöðu sveitarstjórnarstigsins lögð fyrir Alþingi árið 2006. í skýrslunni er að finna upplýsingar um helstu þætti sem skipta máli í laga- og starfsumhverfi sveitarfélaga og sveitarstjórnarmanna, svo sem um fjármál sveitarfélaga, lögmælt og ólögmælt verkefni sveitarfélaga, lýðræði í sveitarfélögum og samskipti sveitarféalga við ríkisvaldið. Einnig er lítillega fjallað um stöðu íslenskra sveitarfélaga í alþjóðlegu samhengi.
Hlaða niður skjaliMannréttindi
Fyrirlestur Ólaf Jóhannessonar um mannréttindi frá árinu 1949, en Ólafur var prófessor í lögum við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn kom út á prenti árið 1951 í fræðiritinu Samtíð og saga. Ólafur Jóhannesson hefur jafnan verin talin faðir stjórnskipunarréttar hér á landi. Hann gaf út fyrsta heildarritið á sviði stjórnskipunarréttar árið 1960. Fræðiritið, sem ber heitið Stjórnskipun Íslands, á enn fullt erindi við stjórnskipunarrétt dagsins í dag, að minnsta kosti að því leyti sem stjórnarskrárákvæðum hefur ekki verið breytt, en ritið hefur verið endurútgefið margoft frá árinu 1960.
Hlaða niður skjaliVald dómstóla til að endurskoða stjórnvaldsákvarðanir
Ragnhildur Helgadóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík fjallar um hvort dómstólar megi hrófla við frjálsu mati stjórnvalda og geti ekki undir ákveðnum kringumstæðum endurskoðað ákvarðanir þeirra. Ragnhildur skoðar dómaframkvæmd og reynir að varpa ljósi á hvernig endurskoðun dómstóla á stjórnvaldsákvörðunum er háttað. Að mati Ragnhildar eru færri takmarkanir á endurskoðunarvaldi dómstóla nú viðurkenndar en áður fyrr. Greinin birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2005.
Hlaða niður skjaliÚrskurðarvald dómstóla um stjórnskipulegt gildi laga
Grein eftir Ragnhildi Helgadóttur prófessor við lagadeild Háskóla Reykjavíkur sem birtist í Afmælisriti Þórs Vilhjálmssonar árið 2000. í greininni er fjallað um endurskoðunarvald dómstóla á stjórnskipulegu gildi laga þ.e. endurskoðun á ákvörðun löggjafans. Í þeim tilvikum er skoðað hvort löggjöf sé samþýð stjórnarskrá, það er brjóti ekki í bága við hana. Oftast reynir á þetta vald dómstóla þegar talið er að mannréttindi hafi verið brotin með löggjöf.
Hlaða niður skjaliBeiting Hæstaréttar Íslands á lögum um Mannréttindasáttmála Evrópu
Grein eftir Davíð Þór Björgvinsson, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu sem birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2003.
Hlaða niður skjaliÁkvæði 1. mgr. 68. gr. um bann við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu
Grein eftir Róbert R. Spanó prófessor við Háskóla Íslands sem birtist í ritinu Lögberg. Í greininni er fjallað um þýðingu og inntak 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar sem kveður á um bann við pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
Hlaða niður skjaliSaklaus uns sekt er sönnuð - Hvað felst í fyrirmælum 2. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar
Grein eftir Eirík Tómasson prófessor í stjórnskipunarrétti um inntak 2. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar sem ná til hugtaksins saklaus uns sekt er sönnuð og hugtaksins réttlát málsmeðferð fyrir dómi í víðtækri merkingu. Greinin birtist í Afmælisriti Gunnars G. Schram.
Hlaða niður skjaliTrúfrelsi, sannfæringarfrelsi og jafnrétti í íslensku stjórnarskránni
Oddný Mjöll Arnardóttir skrifar um trúfrelsi í tengslum við jafnrétti í grein sem birt var í Guðrúnarbók, bók til heiður Guðrúnar Erlendsdóttur fyrrum Hæstaréttardómara, sem gefin var út árið 2006 af Hinu íslenska bókmenntafélagi.
Hlaða niður skjaliFrumvarp til stjórnarskipunarlaga lagt fram árið 1983
Gunnar Thoroddsen þáverandi forsætisráðherra lagði fram árið 1983 heildstæða stjórnarskrá þ.e. frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Frumvarpið var afurð stjórnarskrárnefndar sem skipuð var árið 1972 til að vinna að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Sátu sjö manns í nefndinni sem kosin var af Alþingi. Frumvarpið er eina heildstæða stjórnarskráin sem hefur verið lögð fyrir Alþingi frá samþykkt núgildandi stjórnarskrá árið 1944.
Hlaða niður skjaliHvað segja lögin? Sameignarauðlindir eru mannréttindi
Grein eftir Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands sem birtist í Ragnarsbók: Fræðirit um mannréttindi árið 2009.
Hlaða niður skjaliRökræðulýðræði, borgaravitund, lífpólitík
Grein eftir Vilhjálm Árnason prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands sem birtist í Ragnarsbók: Fræðirit um mannréttindi. Bókin kom út árið 2009 og er tileinkuð Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni.
Hlaða niður skjaliStjórnskipunarþróun í Evrópu
Skýrslan var unnin af Páli Þórhallssyni að beiðni stjórnarskrárnefndar sem starfaði frá árinu 2005 til ársins 2007. Efnið er hluti af skýrslu sem nefndin gaf út í febrúar 2007 en skýrslan var m.a. afrakstur vinnu nefndarinnar við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Í grein Páls er að finna mjög gott yfirlit um samanburð á stjórnarskipun Evrópuríkja.
Hlaða niður skjaliFrá lútherskri kirkjuskipan til almenns trúmálaákvæðis - Hugsanleg endurskoðun á trúmálabálki stjórnarskrárinnar
Hjalti Hugason prófessor við guðfræðideild Háskóla Íslands fjallar um endurskoðun á kirkjuskipan í stjórnarskránni. Birtist í rökstólum Úlfljóts, tímarits laganema árið 2005.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrá er ekki jeppi
Gunnar Karlsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands lýsir viðhorfum sínum til stjórnarskrár og endurskoðunar hennar. Spurningin: ,,Er þörf á stjórnarskrárbreytingu?" var lögð fyrir Gunnar árið 2005 sem hluti af rökstólum Úlfljóts, tímarits laganema við Háskóla Íslands, í ljósi þess að skipuð var stjórnarskrárnefnd sama ár sem bar að endurskoða sérstaklega I., II. og V. kafla stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliHæstiréttur og stjórnarskráin
Grein eftir Ragnhildi Helgadóttur og Þór Vilhjálmsson. Í greininni fjalla höfundar um beitingu Hæstaréttar á ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliSérskipaðar rannsóknarnefndir
Grein eftir Bryndísi Hlöðversdóttur og deildarforseta lagadeildar Háskólans á Bifröst. Fyrst er vikið að lagareglum í Danmörku og Noregi um rannsóknarnefndir, en hér á landi er ekki að finna almenna lagasetningu um rannsóknarnefndir.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrárákvæði um framsal ríkisvalds
Grein eftir Írisi Lind Sæmundsdóttur lögfræðing hjá Utanríkisráðuneytinu er birtist í Úlfljóti, tímariti laganema, árið 2008. Fjallar Íris um stjórnskipulegar heimildir til framsals hér á landi og á Norðurlöndunum en heimild til framsals ríkisvalds er ekki að finna í íslensku stjórnarskránni. Þá leggur Íris fram tillögur til íslensks framsalsákvæðis.
Hlaða niður skjaliRáðherraábyrgð
Grein eftir Andra Árnason lögmann sem birtist í Tímariti lögfræðinga haustið 2009. Í greininni tekur Andri fyrir lög um ráðherraábyrgð og sambærilegar gildandi reglur í Danmörku og Noregi. Andri dregur í lokin sjálfstæðar ályktanir af umfjölluninni og tæpir á lögfræðilegum álitaefnum sem hann telur að komi upp við beitingu laganna. Þess má geta að þegar greinin kom út hafði aldrei reynt á lög um ráðherraábyrgð hér á landi.
Hlaða niður skjaliGreinarflokkur um endurskoðun stjórnarskrárinnar í Finnlandi
Greinar sem birtust í Fréttablaðinu árið 2006 um reynslu Finna af stjórnarskrárvinnu þeirra. Finnar settu sér nýja stjórnarskrá árið 1999.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrárfesta: grundvöllur lýðræðis
Grein eftir Ágúst Þór Árnason brautastjóra við Háskólann á Akureyri sem birtist í Skírni 1999.
Hlaða niður skjaliUm auðlindir í íslenskum rétti
Ítarleg skýrsla eftir Þorgeir Örlygsson, núverandi dómara við EFTA dómstólinn í Luxembourg. Skýrslan var gefin út af forsætisráðuneytinu árið 1999 vegna þáverandi vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliLýðveldið, stjórnskipun og staða forseta
Grein eftir Ágúst Þór Árnason, brautastjóra við Háskólann á Akureyri sem birtist í Lögfræðingi, tímariti laganema við Háskólann á Akureyri.
Hlaða niður skjaliUmhverfisréttur og stjórnarskráin
Grein eftir Aðalheiði Jóhannsdóttur prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Greinin birtist í Úlfljóti, tímariti laganema við Háskóla Íslands árið 2005.
Hlaða niður skjaliEr þjóðareign ríkiseign?
Stutt grein eftir Skúla Magnússon ritara við EFTA dómstólinn, sem jafnframt situr í stjórnlaganefnd. Greinin birtist í Fréttablaðinu, 16. mars 2007.
Hlaða niður skjaliInntak og beiting 15. gr. stjórnarskrárinnar
Grein eftir Ragnhildi Helgadóttur prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík og Margréti Völu Kristjánsdóttur lektors við lagadeild sama skóla. Grein birtist í Lögréttu, Tímariti laganema við Háskólann í Reykjavík. 15. gr. stjórnarskrárinnar fjallar um skipun ráðherra. Í greininni taka höfundar fyrir inntak og framkvæmd ákvæðisins, varðandi skipun og verkaskiptingu ráðherra.
Hlaða niður skjaliÞingsályktunartillaga um aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdarvalds - Vilmundur Gylfason
Þingsályktunartillaga Vilmundar Gylfasonar fyrrum þingmanns, lögð fram árið 1982, um gerð frumvarps til stjórnarskipunarlaga um aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdarvalds.
Hlaða niður skjaliUm dómsvaldið, faglegt mat á hæfni dómara og hlutverk dómstóla í réttarríkinu
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari spyr í grein sinni grundvallarspurninga um dómsvaldið og hlutverk dómstóla. Þá skoðar hún sögulegan bakgrunn dómsvaldsins og hugmyndafræðina, sem liggur þar til grundvallar. Greinin birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2004.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrárhyggja og stjórnarskrárígildi alþjóðlegra mannréttindasáttmála
Grein eftir Hafstein Þór Hauksson lektor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Úlfljóti, Tímariti laganema árið 2008.
Hlaða niður skjaliTogstreita markaðar og réttarríkis
Grein frá Herdísi Þorgeirsdóttur sem birtist í Bifröst, riti Háskólans á Bifröst og hefur að geyma safn fræðigreina.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrárbundið fullveldi Íslands
Grein eftir Kristrúnu Heimisdóttir lögfræðing sem birtist í Tímariti lögfræðing árið 2003.
Hlaða niður skjaliEftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu
Stutt ritstjórnargrein Róbert R. Spanó í Tímariti lögfræðinga árið 2009.
Hlaða niður skjaliEftirlits - og rannsóknarhlutverk Alþingis - forsenda ráðherraábyrgðar
Grein eftir Bryndísi Hlöðversdóttur sem birtist í Rannsóknir í félagsvísindum VI: lagadeild. Eins og heiti greinarinnar gefur til kynna, fjallar um hún eftirlits - og rannsóknarhlutverk Alþingis sem grundvallast á þingræðisreglunni.
Hlaða niður skjaliBeiting ákvæða um efnahagsleg og félagsleg mannréttindi í stjórnarskrá og alþjóðasamningum
Grein eftir Björgu Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í Tímariti lögfræðinga vorið 2001. Höfundur gerir grein fyrir hvaða mannréttindi teljast til efnahagslegra og félagslegra réttinda, hvert sé eðli þeirra og tæpt á sögu og uppruna slíkra réttinda. Sérstök áhersla er lögð á 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar í ljósi dóms Hæstaréttar frá 19.desember árið 2000 í máli Öryrkjabandalags Íslands gegn íslenska ríkinu.
Hlaða niður skjaliÁhrif meðalhófsreglu við skýringu stjórnarskrárákvæða
Grein eftir Björgu Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem birtist í ritinu Lögberg árið 2003. Höfundur fjallar um meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar og hvaða áhrif reglan hefur við skýringu stjórnarskrárákvæða í íslenskri réttarframkvæmd.
Hlaða niður skjaliMannréttindi í sögu og vitund Íslendinga
Grein eftir Ágúst Þór Árnason núverandi brautarstjóra við lagadeild Háskólans á Akureyri sem birtist í Skírni árið 1994.
Hlaða niður skjaliStjórnarskrárbundnar meginreglur og stjórnarskrárvarin réttindi
Grein eftir Dóru Guðmundsdóttur sem birtist í Guðrúnarbók árið 2006.
Hlaða niður skjaliTvískipt ríkisvald?
Ritstjórnargrein eftir Friðgeir Björnsson sem birtist í Tímariti lögfræðinga vorið 1999.
Hlaða niður skjaliSamsteypustjórnir og sjálfstæði ráðherra
Grein eftir Gunnar Helga Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði. Í greininni er fjallað um sjálfstæði ráðherra í norðanverðri Evrópu og aðferðir samsteypustjórna við að hafa taumhald á þeim. Staðan á Íslandi er því skoðuð í alþjóðlegu samhengi hvað varðar stöðu ráðherra.
Hlaða niður skjaliHvernig má tryggja hæfilega valddreifingu í íslenskri stjórnskipun?
Grein eftir Eirík Tómasson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Eiríkur leitast við að svara tveimur spurningum, annars vegar hvort hæfileg dreifing ríkisvaldsins milli ólíkra valdhafa, þannig að þeir hafi visst taumhald hver á öðrum, sé æskileg í lýðræðisríki, eins og á Íslandi og hins vegar hvort slík valddreifing sé nægilega tryggð samkvæmt stjórnskipun hér á landi.
Hlaða niður skjaliInngangur að stjórnskipun
Stutt en greinargott skjal sem hefur að geyma upplýsingar um megineinkenni íslenskrar stjórnskipunar. Ætlað til fróðleiks fyrir þátttakendur á þjóðfundi og aðra sem hafa áhuga á málefnum stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliStofnun lýðveldis - Nýsköpun lýðræðis
Grein frá Svani Kristjánssyni sem birtist í Skírni árið 2002.
Hlaða niður skjaliEiga Íslendingar að skrifa nýja stjórnarskrá?
Lokaritgerð við Háskólann á Bifröst eftir Sævar Ara Finnbogason sem kom út núna í ágúst 2010. Fjallar hann gaumgæfilega um umræðu um stjórnarskrármál og stjórnlagaþing og um nýja stjórnarskrá.
Hlaða niður skjaliStjórnarskráin og fólkið
Grein eftir Ragnar Aðalsteinsson lögmann sem birtist í rökstólum Úlfljóts, tímarits laganema árið 2005. Ragnar fjallar stuttlega um stjórnlagaþing og fullveldi fólksins sem og önnur atriði tengd endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Hlaða niður skjaliAlþingi í ljósi samþættingar löggjafarvalds og framkvæmdarvalds.
Grein eftir Þorstein Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóra Alþingis. Í greininni er m.a. fjallað um starfsumhverfi Alþingis og hlutverk þess. Þá er skoðað hvernig samþættingu löggjafar- og framkvæmdarvalds er háttað og ennfremur kannað framkvæmd og stjórnskipun hvað það varðar á Norðurlöndunum.
Hlaða niður skjaliEftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu
Ítarleg skýrsla frá vinnuhóp sem forsætisnefnd fól að fara yfir núgildandi lagareglur, er varða eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu, og bar hópnum m.a. að leggja mat á hvort breytinga væri þörf í þeim efnum. Skýrslan er mjög ítarleg og aftast má sjá sjá breytingartillögur starfshópsins frá blaðsíðu 282 og áfram.
Hlaða niður skjaliPólitísk ábyrgð ráðherra - samspil þingræðisreglu og þingeftirlits
Grein eftir Ragnhildi Helgadóttur sem birtist í Tímariti lögfræðinga haustið 2009. Ragnhildur fjallar meðal annars um inntak, eðli og áhrif þingræðisreglunnar á þingeftirlit og ábyrgð ráðherra. Ennfremur er að finna umfjöllun um réttarstöðu varðandi pólitíska ábyrgð ráðherra og endamörk lagareglna er henni tengjast.
Hlaða niður skjaliConstitution Building Processes and Democratization
Áhugavert efni um stjórnskipunarþróun og gerð stjórnarskrár sem og lýðræðisvæðingu. Í skýrslunni má til að mynda finna kafla er fjallar um tengslin milli lýðræðis og stjórnarskrár. Gefið út af IDEA, sem er alþjóðleg lýðræðis- og kosningastofnun staðsett í Stokkhólmi.
Hlaða niður skjaliÁfangaskýrsla auðlindanefndar - Inngangur
Skýrsla nefndar frá árinu 1999 sem fjallar um auðlindir í íslenskum rétti í heild sinni. Samfara skýrslunni var lögð fram tillaga um stjórnarskrárbreytingu sem náði ekki fram að ganga.
Hlaða niður skjaliStjórnarskráin og meðferð utanríkismála
Grein eftir Björgu Thorarensen prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Greinin birtist í 60 ára afmælisriti Úlfljóts, tímariti laganema við Háskóla Íslands árið 2007. Í greininni er meðal annars fjallað um inntak 21. gr. stjórnarskrárinnar sem varðar aðkomu Alþingis að meðferð utanríkismála, en alþjóðasamskipti falla að mestu undir verksvið framkvæmdarvaldsins.
Hlaða niður skjali...,,einungis eftir lögunum"
Grein eftir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmann sem birtist í Úlfljóti tímariti laganema við Háskóla Íslands árið 2000. Ragnar fjallar um hlutverk dómstóla og endurskoðunarvald þeirra gagnvart ákvörðunum löggjafans. Örlítið er fjallað um grundvallarhugtök stjórnskipunarinnar svo sem um lýðræði, stjórnarskrárfestu, mannréttindi og réttarríkið.
Hlaða niður skjaliHelstu hugtök um stjórnarskrá og stjórnskipun
Helstu hugtök stjórnskipunarréttarins eru útskýrð stuttlega og hnitmiðað. Einkar handhægt fyrir fróðleiksfúsa þjóðfundargesti og aðra áhugasama.
Hlaða niður skjaliGreinarflokkur um endurskoðun stjórnarskrárinnar 2009
Greinarflokkur um stjórnarskrána og endurskoðun hennar sem birtist í Fréttablaðinu, febrúar 2009.
Hlaða niður skjaliGreinarflokkur um endurskoðun stjórnarskrárinnar frá 2005
Ítarlegur greinarflokkur í 15 hlutum, um hvaðeina er tengist stjórnskipun sem birtist í Fréttablaðinu árið 2005.
Hlaða niður skjaliFrumvarp til stjórnarskipunarlaga, lagt fram á 136. löggjafarþingi 2008-2009
Frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt var fram á Alþingi vorið 2009. Með frumvarpinu var lagt til að náttúruauðlindir sem ekki væru háðar einkaeignarrétti væru þjóðareign, breytingar á aðferðum við breytingar á stjórnarskránni, ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur og um stjórnlagaþing. Frumvarpið náði ekki fram að ganga.
Hlaða niður skjaliEndurskoðun stjórnarskrárinnar - áfangaskýrsla frá 2007
Hér fer ítarleg skýrsla sem var afrakstur stjórnarskrárnefndar sem starfaði frá 2005-2007. Um er að ræða yfirgripsmikla skoðun á íslenski stjórnskipan og velt um þeim atriðum sem þyrfti að endurskoða í stjórnarskránni. Í skýrslunni má finna tvö fylgigögn: Ágrip af þróun stjórnarskrárinnar og Stjórnskipunarþróun í Evrópu sem eru gagnleg yfirlestrar.
Hlaða niður skjali