Spurning um 5. gr. Jafnræði

Aðalsteinn Júlíus Magnússon
  • Skráð: 19.07.2011 14:27

Spurning um 5. gr. Jafnræði

5. gr. Jafnræði
Hvernig er orðið mannréttindi skilgreint? Á orðið mannréttindi við um öll þau „almennu“ gæði sem ríkið útdeilir, líka eftir sérstökum þörfum, svo sem vegna fötlunar? Fellur t.d. búsetuskilyrði Tryggingastofnunar undir ákvæði eða er það ekki brot að krefjast 40 ára búsetu til að njóta fulls grunnörorkulífeyris? Væri það brot að takmarka aðra þætti vegna skorts á búsetutíma, t.d. hluta af heilbrigðisþjónustu? Þó svo að takmarkanir vegna búsetu geti bitnað á Íslendingum af íslensku foreldri bitna svona reglur hlutfallslega þyngra á Íslendingum af erlendu bergi brotnu, er það brot?

Virðingarfyllst,
Aðalsteinn Júlíus Magnússon

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.