Kjararáð
Þórir Már Þórisson
- Heimilisfang: Heiðarveg 3. Selfossi
- Skráð: 15.07.2011 03:00
Eins og þetta er í dag þá er eitthvað sem heitir KJARARÁÐ sem er ekkert annað en hagsmunasamtök nokkurra einstaklinga (því það fær % af þeirri upphæð sem það ákveður fyrir ráðherra og þingmenn) sem er alveg ótækt með öllu að það skuli vera einhver samtök út í bæ, sem eru að vasast með þetta, það er launagreiðandinn sjálfur sem á að ákveða það (sem er þjóðin sjálf).
Svo vona ég að þetta skili sér og einhver nenni að taka þetta upp.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.