Tillaga um að tilgreina bæði kynhneigð og kynvitund í mannréttindakafla/jafnræðisreglu stjórnarskrár
Guðmundur Helgason
- Skráð: 05.07.2011 16:28
Undirrituð félagasamtök óska eftir að kynhneigð[1][1] og kynvitund[2][2] verði tilgreind sérstaklega í jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar sem nú er 65. grein, en verður líklega 2. grein. Tökum við undirrituð því í sama streng og í erindi Q - Félags hinsegin stúdenta, dagsett 16. júní 2011.
Leggjum við til að fyrsta málsgrein hljómi þannig eftir breytinguna:
Öll erum við jöfn fyrir lögum og skulum njóta mannréttinda án nokkurs manngreinarálits, svo sem vegna kynferðis, aldurs, arfgerðar, búsetu, efnahags, fötlunar, kynhneigðar, kynvitundar, kynþáttar, litarháttar, skoðana, stjórnmálatengsla, trúarbragða, tungumáls, uppruna, ætternis og stöðu að öðru leyti.
Tillaga til að skilgreina bæði kynvitund og kynhneigð (PDF)
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.