Réttlæting pólitískra ákvarðana eykur lýðræðið

Björn Einarsson læknir LSH og heimspekinemi
  • Heimilisfang: Hlíðarbyggð 2, 210 Garðabær
  • Skráð: 01.07.2011 14:17

Tillaga: Stjórnvöld, ráðherrar og alþingismenn verða að réttlæta skriflega með rökum pólitískar ákvarðanir og lagasetningar. Réttlætingarnar eiga að birtast með stjórnvaldsákvörðunum og nýsettum lögunum.

Réttlæting: Stjórnmálamenn hafa fjarlægst umbjóðendur sína, kjósendur. Með því að skylda stjórnvöld til að réttlæta allar pólitískar ákvarðanir hafa kjósendur meiri möguleika á að mynda sér skoðun á ákvörðunum og þroska sína pólitísku vitund. Þetta yrði því skref í þá átt að auka þátttökulýðræði (Deliberative democracy) í landinu. (Næsta skref í lýðræðisþróun yrði svo, að við samningu lagafrumvarpa, þegar leitað er álits sérfræðinga og hagsmunahópa, yrði einnig tekið tillit til álits kjósenda t.d. með borgarafundum).

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.