Bann við þegnskylduvinnu
Margrét Guðmundsdóttir
- Heimilisfang: Furugerði 6, 108 Reykjavík
- Skráð: 27.06.2011 23:45
Skv. núverandi lögum um „Fjallskil“ er eigendum jarða skylt að smala þær, þó svo að þeir séu fjárlausir.
Ef eigendur smala ekki ber þeim skylda til að greiða upphæð sem ákveðin er af fjallskilanefnd viðkomandi sveitarfélags. Það er með ólíkindum að í nútíma samfélagi geti ein atvinnugrein haft þau forréttindi að nágrannar séu skyldaðir gegn eigin vilja til að taka þátt í slíkri atvinnustarfsemi án þess að fá greitt fyrir. Þetta hlýtur að vera brot á mannréttindum.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.