Breyting á trúmálskafla
Úlfur Kolka
- Heimilisfang: 107 Vesturbær
- Skráð: 25.06.2011 12:34
Breyting á trúmálskafla
Mig langar til að taka upp hanskann fyrir Helga heitinn Hóseasson og láta gera breytingu á 64. grein í stjórnarskrá. Þar stendur að öllum sé frjálst að standa utan trúfélaga. Þar vil ég láta bæta því inn að allir menn hafi rétt á því að skírn þeirra sé afskráð af fæðingarskýrslu þeirra, óski þeir þess. Sama ætti að gilda um kirkjubók. Þetta er einföld krafa og sjálfsögð mannréttindi.
Ég tel að margir sem standa utan trúfélaga myndu nýta sér þennan rétt. Ég þar með talinn.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.