Aðskilnaður ríkis og rirkju
Ragnar Björnsson
- Heimilisfang: Húsavík
- Skráð: 22.06.2011 19:06
Sæl verið þið.
Í 900 ár höfum við, íslenska þjóðin, verið neydd í þjóðkirkjuna. Í fyrstu var dauðarefsing við að neita að breyta yfir í kristna trú. Er ekki kominn tími á að sú kúgun endi?
Öll börn sem fæðast hér á landi eru skráð sjálfkrafa í þjóðkirkjuna og við borgum skatta í þjóðkirkjuna, flest án þess að vita af því. Einnig eru útlendingar, sem loks fá íslenskan ríkisborgararétt, skráðir í þjóðkirkjuna, velji þeir ekki annað. Sem íslenskur þegn og ríkisborgari hef ég aldrei haft val um neitt annað en að Ísland sé skilgreint sem kristin þjóð undir kristnum gildum og kristnum fána og kristnum þjóðsöng.
Gefið okkur val aftur.
Kv. Einn af þúsundum ókristnum
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.