Aðskilnaður ríkis og rirkju

Ragnar Björnsson
  • Heimilisfang: Húsavík
  • Skráð: 22.06.2011 19:06

Sæl verið þið.

Í 900 ár höfum við, íslenska þjóðin, verið neydd í þjóðkirkjuna. Í fyrstu var dauðarefsing við að neita að breyta yfir í kristna trú. Er ekki kominn tími á að sú kúgun endi?

Öll börn sem fæðast hér á landi eru skráð sjálfkrafa í þjóðkirkjuna og við borgum skatta í þjóðkirkjuna, flest án þess að vita af því. Einnig eru útlendingar, sem loks fá íslenskan ríkisborgararétt, skráðir í þjóðkirkjuna, velji þeir ekki annað. Sem íslenskur þegn og ríkisborgari hef ég aldrei haft val um neitt annað en að Ísland sé skilgreint sem kristin þjóð undir kristnum gildum og kristnum fána og kristnum þjóðsöng.

Gefið okkur val aftur.

Kv. Einn af þúsundum ókristnum

 

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.