Áheyrnarfulltrúar íbúa án kosningarréttar

Héðinn Björnsson
  • Heimilisfang: Ljósheimar 20 - 2B
  • Skráð: 22.06.2011 14:15

Áheyrnarfulltrúar íbúa án kosningarréttar

 

Ég legg til að gert verði mögulegt í stjórnarskrá að íbúar á Íslandi sem ekki hafa kosningarétt geti kosið sér áheyrnarfulltrúa á þing með fullt málfrelsi. Það geta bæði verið erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi og sakhæf ungmenni á Íslandi.

 

Þetta er leið til að auka aðgang þessa stækkandi hóps á Íslandi sem ekki hefur kosningarétt að valdakerfinu og tryggja að það tali einhver fyrir þeirra hagsmuni jafnvel þótt viðkomandi hópar hafi ekki kosningarétt. Þessi hópur þarf að búa við afleiðingar ákvarðana þingsins, hann notar opinbera þjónustu, borgar skatta og þarf að lúta lögunum og á að eiga rétt á að hafa áhrif á ákvarðanir þess.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.