Titlar ráðherra

Gauti Kristmannsson
  • Heimilisfang: Langholtsvegur 87
  • Skráð: 20.06.2011 14:56

 

Orðið ráðherra þykir stundum hjákátlegt þegar konur gegna þeim embættum þótt það geti vissulega vanist eins og annað í tungumálum. Hins vegar er til gamalt orð sem áður var notað um háttsetta embættismenn ríkisins og það er hvorugkynsorðið „ráð“, sbr. Jón Eiríksson, konferensráð, sem áður prýddi 10 kr. seðlana. Orðið á sér fyrirmyndir í dönsku og þýsku eins og orðið ráðherra.

Þetta orð er þjált hvorugkynsorð sem getur átt við bæði kyn. Þannig yrði einfaldlega talað um forsætisráð, innanríkisráð og þar fram eftir götunum. Auðvitað þyrftu menn að venjast því, en það er ekkert annarlegra en að kona sé herra ...

Með kveðju, Gauti Kristmannsson

 

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.