Bann við hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi
Lúðvíg Lárusson
- Heimilisfang: Furugerði 6, 108 Reykjavík
- Skráð: 19.06.2011 22:24
Setja afgerandi og skýlaus fyrirmæli um bann við hryðjuverkum, skipulagðri glæpastarfsemi hvers lags, mansali og nauðungarvinnu sem ólöglegri. Sömuleiðis er brýnt að veita heimildir til að beita viðbrögðum sem eru engu síður áhrifarík úrræði ástandinu til upprætingar.
Er hér um að ræða eina þá grófustu meinsemd sem þjóðfélag getur átt í og ef það er ekki í stakk búið til að brjóta slíkt ástand á bak aftur strax jafngildir það að stjórnvöld líða að borgurunum sé misþyrmt, haldið í gíslingu og hnepptir í þrældóm t.d. fjárkúgunar, vændi eða vinnu án launa. Þetta er að finna allt í kringum okkur í dag og ekki aðeins í lýsingum á ránsferðum víkinga forðum. Forðast ber að kæfa úrlausnir í lagaflækjum og heldur heimila sérlög í þessum tilgangi sem kemur saklausum þolendum til góða.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.