Trúarlegar hefðir aldrei rétthærri landslögum

Lúðvíg Lárusson
  • Heimilisfang: Furugerði 6, 108 Reykjavík
  • Skráð: 19.06.2011 22:14

Trúarlegar kennisetningar og hefðir verði aldrei rétthærri en landslög og fyrirmæli stjórnarskrár gefa til kynna.

Á sama hátt og störf Alþingis eiga að vera hin lýðræðislega leið til að skilgreina lög og reglur samfélagsins þá eru ekki til sambærilegar reglur né vettvangur til að skera úr um mótsagnakenndar trúarlegar kennisetningar. Því er nauðsynlegt hverju samfélagi að það sé aðeins ein stofnun sem sker úr um þessa þætti. Gott dæmi um þennan vanda er bann Frakka við að hylja aldlit sitt á almannafæri sem verður hitamál því að þess er krafizt víða í löndum með íslamstrú.


Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.