Eignarréttur sjávarjarða

Ómar Antonsson
  • Hagsmunaaðilar: Samtök eigenda sjávarjarða
  • Skráð: 08.06.2011 20:41

Stjórnlagaráð.
Til allra fulltrúa.


Samtök eigenda sjávarjarða.
Pósthólf 90,
780 Hornafirði.


14. apríl 2011.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um eignarrétt sjávarjarða í sjávarauðlindinni sem lagafyrirmæli eru um. Ef skoðað verður eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar hvað viðvíkur sjávarauðlindinni þá þarf að taka tillit til þessara réttinda. Vinsamlegast komið upplýsingunum til allra fulltrúa Stjórnlagaráðs.

Heimasíða samtakanna er: www.ses.is

Virðingarfyllst,

Ómar Antonsson, formaður.

Meðfylgjandi:

Auglýsing, eldri dags. 3. október 2003, endurskoðuð 8. apríl 2011. (PDF)

Upplýsingar um álit Mannréttindadómstóls Evrópu, 2. desember 2008. (PDF)

Minnisatriði frá fundi með formanni stjórnarskrárnefndar 4. júlí 2005. (PDF)

Úrdráttur úr fundargerð 7. fundar nefndar um endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu, en samtök eigenda sjávarjarða áttu fulltrúa í nefndinni. (PDF)

Bréf til sjávarútvegsnefndar Alþingis, dags. 11. júní 2009 (PDF)

Bréf, dags. 7. nóvember 2002 til dr. Franz Fischlers sjávarútvegsráðherra Evrópusambandsins. (PDF)

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.