Friðhelgi heimilis og afsal fullveldis

Einar V. Tryggvason
  • Skráð: 08.06.2011 19:04

Til þess er málið varðar.

Ég hef lítillega fylgst með fréttum af mannréttindakaflanum. Ég hef ekki heyrt minnst á friðhelgi heimilisins í þeirri umræðu. Þetta er grundvallaratriði í siðmenntuðu þjóðfélagi, og lög um hana vantar sárlega hjá okkur. Hér geta menn vaðið inn á heimili fólks, limlest það, ruplað og rænt, án þess að hafa neinar áhyggjur af afleiðingum þess. Ég tel að lágmarks refsing, óháð öðrum brotum, eigi að vera 3 ár í fangelsi óskilorðsbundið. Þetta myndi nánast binda enda á það ófremdarástand sem hér ríkir í þessum málum, og útlendar glæpaklíkur hættu að venja komur sínar til landsins.

Síðan vil ég benda á, að ákvæði um afsal fullveldis landsins í nýrri stjórnarskrá stangast á við stjórnarskrá landsins og heitir þar landráð og varðar fangelsi allt að 6 árum.

Kveðja, Einar V. Tryggvason

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.