Bönnum þjóðkirkjuna
Matthías Ásgeirsson
- Heimilisfang: Bakkasel 23, 109 Reykjavík
- Hagsmunaaðilar: Vantrú
- Skráð: 05.06.2011 14:20
Í ljósi þess að Stjórnlagaráð virðist leita miðjunnar í öllum umdeildum málum legg ég til eftirfarandi breytingu á 62. grein.
> 62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera bönnuð á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti ofsækja hana og kúga. Ekki má breyta þessu með lögum. Trúleysi skal vera hin opinbera lífsskoðun á Íslandi.
Ég vona að tillaga mín auðveldi meðlimum Stjórnlagaráðs að finna lendingu varðandi þjóðkirkjuákvæði stjórnarskrár.
Lausnin liggur sennilega mitt á milli tillögu minnar og núverandi greinar, þ.e.a.s. með því að fjarlægja einfaldlega 62. grein úr stjórnarskrá og tiltaka ekkert trúfélag í stjórnarskrá allra Íslendinga, trúaðra og vantrúaðra.
Nánar: http://www.vantru.is/2011/06/05/10.00/
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.