Mannréttindi/Framkvæmdarvald
Kristján Sig. Kristjánsson
- Heimilisfang: Bakkastíg 2
- Skráð: 04.06.2011 22:08
Ágætu fulltrúar.
Það eru mér mikil vonbrigði að eftir tvær umræður er enn óbreytt félagsskyldan samkæmt 74. gr. stj. þrátt fyrir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi margdæmt hana í andstöðu gegn Mannréttindasáttmála Evrópu og það tvisvar gegn Íslandi. Þá eru það einnig vonbrigði að sjá sérstakan „Hæstarétt“ með framhjá dómstólum landsins fyrir ótilgreind félög.
Síðan vil ég sjá bann við framsali stjórnvalds til félaga úti í bæ.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.