Þegar þingmenn skipta um flokk
Sveinn Þorsteinsson
- Skráð: 03.06.2011 08:59
Sæl, ég er verulega ósáttur við það fyrirkomulag, að menn eru kosnir á þing fyrir ákveðinn flokk og flokksfélagar viðkomandi manna berjast við að koma viðkomandi á þing til að koma á framfæri samþykktum viðkomandi flokks á Alþingi Íslendinga. Þá finnst mér að viðkomandi hafi ekki lengur umboð til að vera þingmaður og á að víkja úr sæti fyrir varamanni. Nýjasta dæmið er þegar Ásmundur Einar Daðason er allt í einu orðinn framsóknarmaður.
Það er mín skoðun að þegar þingmaður á ekki lengur samleið með þeim flokki sem hann er kosinn til og getur ekki sætt sig við flokkssamþykktir sinna félaga að þá á hann að víkja, en ekki að fara að vera boðberi annars flokks.
Hefur þetta verið rætt í Stjórnlagaráði? Gaman væri að fá svar við þessu.
Bestu kveðjur,
Sveinn Þorsteinsson
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.