Þjóðareign!

Hrönn Guðmundsdóttir
  • Heimilisfang: Engjaseli 1 109 Reykjavík
  • Skráð: 29.05.2011 14:53

Mikil umræða er um að varðveita allt það sem landið okkar býr yfir – eins og orka í iðrum jarðar og í vötnum, auk fiskimiða o.fl. og að allt þetta sem landið getur gefið okkur sé í þjóðareigu en ekki að einstaklingar geti sölsað undir sig slíkar auðlindir.

Í því sambandi vil ég t.d. nefna að gleyma ekki ám sem liggja að landareign eða jafnvel í gegn um hana – að ábúandi geti ekki átt ána heldur bara fái afnotarétt af henni.

Takk fyrir:) HG

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.