Framkvæmdarvaldið III
Pétur Jósefsson
- Heimilisfang: Þorláksgeisli 6
- Skráð: 27.05.2011 09:55
Í Fréttablaðinu í dag - 27. maí - les ég að hugmyndir Stjórnlagaráðsins séu þær að Alþingi kjósi oddvita framkvæmdarvaldsins - forsætisráðherrann. Ekki er mikill munur á því hvort Alþingi kjósi forsætisráðherra eða Alþingi samþykki nýja ríkisstjórn eins og aðferðin er núna. Mín skoðun er sú að kjósendur - fólkið í landinu - eigi að kjósa forsætisráðherrann t.d. til fjögurra ára og þá um leið varamann hans. Hámarkstími í embætti forsætisráðherra má gjarna vera átta ár. Forsætisráðherra velur síðan meðráðherra sína en Alþingi skal samþykkja val hans, þ.e. hvern ráðherra sérstaklega. - Hlutverk Alþingis á að vera lagasetning og eftirlit með stjórnsýslunni og framkvæmdarvaldinu og það er ærið hlutverk. Er þjóðinni ekki treystandi til að kjósa sér forsætisráðherra? Ég trúi því ekki að Stjórnlagaráð leggi til plástur á núverandi aðferð í stað þess að hugsa upp á nýtt. Þjóðin sjálf skal bera ábyrgð á forsætisráðherranum og ég er þeirrar skoðunar að þjóðin myndi vanda sig mjög við að kjósa jafn valdamikinn mann sem forsætisráðherra er. - Embætti forseta Íslands skal leggja niður í núverandi mynd - forsætisráðherrann eða forseti Alþingis skulu sinna því embætti.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.