Lýðræði eða flokksræði
Guðmundur H. Bjarnason
- Heimilisfang: Lautarsmára 27, 201 Kópavogur
- Skráð: 21.05.2011 13:28
Það er óþarfi að vera með málalengingar því málið er svo einfalt.
Alþingi okkar íslendinga er ekki kosið lýðræðislegri kosningu.
Staðreynd er að Alþingi er ekki kosið beinum kosningum heldur eru flokkar með prófkjör eða stilla bókstaflega upp fólki á lista sem síðan eru kjörnir á þing.
Ekkert val er um einstaklinga í kosningum.
Þetta er svo mikill útúrsnúningur á lýðræði að það hálfa væri nóg.
En hvernig eiga okkar vana-þingmenn annars að komast á þing? Enginn myndi kjósa allt þetta fólk í beinum kosningum. Veltið því fyrir ykkur.
Flokkadrættir eiga engan rétt á sér í kosningum á Íslandi. Kjósa ber um einstaklinga en ekki flokka samkvæmt lögum.
Með bestu kveðju,
Guðmundur H. Bjarnason.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.