Sanngirnismál og fleira

María S. Helgadóttir
  • Heimilisfang: Langholti 6
  • Skráð: 21.05.2011 08:16

Í Draumalandinu fagra, sem glitrar eins og demantur í hafinu stóra, því þar ríkir réttlæti og friður og þar hafa allir það jafn gott:

1. Að til verði einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn.

2. Að allir þjóðfélagshópar búi við sömu eftirlaunaréttindi, þ.e.a.s. fái sömu krónutölu til að tryggja mannsæmandi afkomu.

3. Að veikindaréttur allra verði sá sami þannig að verkamaðurinn búi ekki við 90 daga veikindarétt á föstum launum á meðan ríkisstarfsmaður fær allt að 360 veikindadaga.

4. Og loks af öðrum meiði: Að meira en einfaldan meirihluta þurfi til að samþykkja veigamikil mál á Alþingi, t.d. við afgreiðslu fjármála.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.