Friðarmál II - um hernaðarbandalög

Guðríður Sigurbjörnsdóttir
  • Heimilisfang: Box 279
  • Hagsmunaaðilar: Menningar- og friðarsamtökin MFÍK
  • Skráð: 19.05.2011 17:46

Friðarmál II : um hernaðarbandalög

Gerum okkur ekki kvíðann að hlíf

Að standa utan hernaðarbandalaga kann að virðast flókið og erfitt mál við fyrstu sýn. Þjóð sem velur þann kost neyðist til að horfast í augu við heiminn og taka mikilvægar bindandi ákvarðanir á eigin ábyrgð og á eigin forsendum.

Nýliðin öld er talin blóðugust allra frá upphafi og þarf ekki mikla söguþekkingu til að sjá hvernig hernaðarbandalög hafa leyst upp og skriðið saman á ný í nýrri mynd. Það voru m.a. „hámenntuðustu“ þjóðir heims sem sendu blómann úr heilum kynslóðum ungra manna út í opinn dauðann í tveimur heimsstyrjöldum. Og enn eru þau að. Því stríð leysa hvorki tímabundinn vanda né langtímavanda. Það hafa þau aldrei gert – þvert á móti - þau undirbúa jarðveginn fyrir áframhaldandi styrjaldir og geta aðeins hnikað til valdahlutföllum og auðæfum – enda leikurinn til þess gerður.

Innan hernaðarbandalaga er hinum smærri og valdaminni þjóðum, að ekki sé minnst á þær óvopnuðu, skákað fram og tilbaka að vild, lönd þeirra og lofthelgi notuð sem þurfa þykir án þess að þegnar þeirra séu spurðir álits. Enginn spyr hvort það íþyngi samvisku okkar og sálarfriði að hryllileg voðaverk séu unnin í fjarlægum löndum í okkar nafni, og við yrðum heldur ekki spurð þótt víglínan færðist okkur nær.

Er þetta sú staða sem við kjósum? Höfum við val?

Fjölmargar þjóðir í Evrópu hafa lýst yfir varanlegu hlutleysi (Austurríki, Sviss, Svíþjóð, Finnland og Írland) og ýmis fleiri ríki (svo sem Costa Rica, Turkmenistan, Malta, Japan, og Panama) hafa bundið ævarandi hlutleysi í stjórnarskrá sína og lög. Hlutleysi landa er af ýmsum toga og liggja að baki margvíslegar og ólíkar sögulegar ástæður, þrýstingur risavaxinna grannríkja, milliríkjasamningar eftir stórátök o.fl. og víst er að túlkun á hugtakinu hefur verðið breytileg og teygjanleg á stundum. Ýmsar raddir eru t.d. uppi nú um óljósa og breytta stöðu sumra hlutlausra Evrópuríkja eftir inngöngu þeirra í ESB sem hefur eins og menn vita eigin stefnu í utanríkismálum.
Hagsmunirnir eru margvíslegir sem marka slóð hvers ríkis og örlög, en hver þjóð verður að taka ein og óhrædd ákvarðanir um hlutverk sitt.

Ekki er ofmælt að ráð heimsins leiki á reiðiskjálfi, kannski sem aldrei fyrr. Ofan á ófrið og stríðsrekstur víða um heim bætist nú við áður óþekktur vandi sem stafar af hirðuleysi mannanna í umgengni við náttúruna. Yfirvofandi vatns- og matarskortur með tilheyrandi fólksflutningum og óöryggi er í uppsiglingu. Og það í slíkum mæli að augu venjulegs fólks um allan heim eru farin að opnast fyrir þeirri fráleitu stöðu að ómældu fjármagninu sem dælt er í grimmileg yfirráð einræðisherra og í hernaðarleiki þjóðanna er ekki aðeins kastað á glæ, heldur eykur það stórlega sundrungu og böl.

Friðsamleg afstaða og bræðralag þjóða eru mannanna verk engu síður en sóun og grimmd. Samstaða og samábyrgð í baráttu gegn fátækt, sjúkdómum og misrétti eru það líka.

Til eru mörg lýsandi dæmi um vopnlaust andóf, friðsamlega baráttu manna eins og Gandhis sem með hugrekki og einurð breytti gangi sögunnar til frambúðar með hugsjónir einar að vopni.

Sérhver langferð hefst á einu skrefi og hver þjóð með sjálfsvirðingu verður að taka það skref á eigin fótum með skýra og markvissa stefnu fyrir augum. Íslendingar geta lagt sinn skerf til bræðralags þjóðanna og bæst í vaxandi hóp þeirra sem velja veg friðar. Það geta þeir með því að lýsa því yfir að þeir fari ekki með ófriði á hendur öðrum þjóðum, lýsa land sitt herlaust og vopnlaust og með því að taka sér stöðu utan hernaðarbandalaga. Síðasta ákvæðið er mikilvægast, bæði sem fordæmi og vegna þess að án þess falla hin niður dauð og ómerk og við verðum áfram leiksoppar annarra þjóða.

Hvað varðar spurninguna um hvað til bragðs skuli taka sé á okkur ráðist, er endanlegt svar vandfundið. Meginstoð er í þeirri staðreynd að alþjóðalög viðurkenna og skilgreina rétt þjóða til hlutleysis. Ekki má ráðast inn í hlutlaust ríki og það á rétt á að grípa til varna án þess að fyrirgera hlutleysisrétti sínum segir m.a. í Haag sáttmálanum. Það ríki sem bindur hlutleysi í stjórnarskrá hlýtur að gera það með vandlega yfirveguðum hætti í samræmi bæði við alþjóðalög, eigin forsendur og vilja þjóðarinnar.

Ekki er hægt að taka önnur svör gild en okkar eigin. Hvern ætti að spyrja ráða? Hernaðaröflin sem standa í „vörnum“ nótt sem nýtan dag og eiga alla sína hagsmuni undir því að viðhalda óbreyttu ástandi? Ættum við að leita svara hjá þjóðunum sem sjá „varnirnar“ með eigin augum í limlestum líkum sinna nánustu, hrundum borgum sínum og sviðinni jörð?

Engin leið er fær önnur en leið ábyrgðar, sátta og samvinnu ef menn ætla ekki að fyrirgera mennsku sinni eins og skáldið Harold Pinter sagði í frægri Nóbelsverðlaunaræðu sinni rétt fyrir dauða sinn árið 2005.

Stjórn MFÍK

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.