Kjörnir fulltrúar
Natan Kolbeinsson
- Heimilisfang: Safamýri 50
- Skráð: 13.05.2011 12:28
Ég tel að ekki eigi að koma á reglu um hversu mörg kjörtímabil þingmenn, ráðherrar eða forseti megi vera.
Ég tel að svo lengi sem fólk treysti þeim eigi þeir að geta starfað áfram. Ef við förum að setja þetta hámark þá er mikil hætta á að við missum út gott fólk sem enn hefur orku, vilja og traust þjóðar til að vera að vinna að því að gera landið betra. Mér finnst þetta smá svona vantraustsyfirlýsing á þjóðina með því að segja að þau geti ekki sagt hverjum hún treystir. Er það ekki líka brot á jafnrétti að banna þeim að bjóða sig fram? Mér finnst þessi umræða lykta af forræðishyggju.
Natan Kolbeinsson.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.