Ábyrgð í stað valds

Nils Gíslason
  • Heimilisfang: Skógarbraut 1107
  • Skráð: 07.05.2011 22:37

Kæri ráðsmaður.

Ég var að hlusta á 7. fundinn og þar voru hugtök þar sem orðið VALD kom inn í umræðuna.

Mig langar til að þið skoðið í alvöru hvernig viðkomandi setning væri ef orðið ÁBYRGÐ kæmi í staðinn fyrir orðið vald! Í stað þess að tala um vald ráðherra þá kæmi ábyrgð ráðherra og svo framvegis. Það er stundum talað um valdafíkn, en ekki svo mikið um ábyrgðarfíkn.

Ég skora á ykkur öll að muna eftir því að þegar einhver segir völd eða vald, prófið þá að umorða setninguna með hugtakinu ábyrgð og metið hvað það þá þýðir.

Kveðja.

Nils Gíslason

Skógarbraut 1107

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.