Dómsvald
Nils Gíslason
- Heimilisfang: Skógarbraut 1107
- Skráð: 04.05.2011 21:32
Varðandi dómsvald, hópur C.
Tillaga nefndar að D2 - Sjálfstæði dómstóla:
Sjálfstæði dómstóla skal tryggt með lögum. Dómstólar mega hvorki sinna störfum sem samkvæmt venju eða eðli sínu heyra undir aðra valdþætti ríkisins né má fela þeim slíkt með lögum.
Umræða:
- Er ekki við hæfi að stjórnarskráin setji héraðsdómstiginu ákveðinn ramma rétt eins og hæstaréttarstiginu?
- Með lögum má undanskilja lögsögu hans (hæstaréttar) mál sem sæta úrlausn sérdómstóla á einu dómstigi. Hver er tilgangurinn með þessu, sparnaður? Eigum við ekki öll að njóta lögsögu Hæstaréttar, er það ekki jafnræði og mannréttindi?
Bestu kveðjur,
Nils.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.