Vantrauststillögur á sitjandi meirihluta á Alþingi

Guðrún Gísladóttir
  • Heimilisfang: Kaupmannahöfn
  • Skráð: 04.05.2011 19:56

Góðan dag.


Þegar ég las stjórnmálafræði við Háskólann í Lundi, kynntumst við aðeins stjórnarfari í öðrum löndum. Ég mundi sérstaklega eftir einu atriði um daginn, þegar umræðan um vantrauststillöguna var rædd á Alþingi. Á þýska þinginu (því vestur-þýska sem þá var) var því aðeins hægt að leggja fram vantrauststillögu á sitjandi meirihluta að því fylgdi tillaga um það sem betur mætti fara. Ef ég man rétt, þá var þetta kallað „konstruktivt veto“ á sænsku.


Með vinsemd og virðingu,

Guðrún Gísladóttir.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.