Friðar- og afvopnunarmál

Samtök hernaðarandstæðinga
  • Hagsmunaaðilar: Samtök hernaðarandstæðinga
  • Skráð: 28.04.2011 13:33

Kæri stjórnlagaráðsfulltrúi.

Vinna við endurskoðun stjórnarskrárinnar er ábyrgðarmikið starf. Að mörgu ber að hyggja og viðfangsefnin eru mörg. Meðal þeirra málefna sem bent hefur verið á að brýnt sé að huga að við stjórnarskrárvinnuna eru friðar- og afvopnunarmál.

Samtök hernaðarandstæðinga hafa lengi barist fyrir því að þessi málefni væru tekin upp í stjórnarskrá og lögðu m.a. fram tillögur þessa efnis til stjórnarskrárnefndar fyrir fáeinum árum. Þar var hvatt til þess að:

i) Tiltekið yrði í stjórnarskrá að Ísland sé herlaust land og herskyldu megi ekki í lög leiða.

ii) Friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum yrði áréttuð (sbr. ákvæði m.a. í japönsku stjórnarskránni).

iii) Að tekið yrði fram að Ísland gæti ekki staðið að því að farið væri með ófriði á hendur öðrum þjóðum – en til vara að ákveðnar reglur yrðu settar um hvernig staðið skyldi að slíkum ákvörðunum. Reynsla síðustu ára sýnir enn frekar fram á mikilvægi þessa.

Við í Samtökum hernaðarandstæðinga höfum mikinn áhuga á að fá að hitta sem flesta fulltrúa Stjórnlagaráðs á komandi vikum, til að ræða þessi stefnumál og tryggja framgang þeirra við löngu tímabæra endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Til að byrja með, viljum við hins vegar bjóða þér á hinn mánaðarlega fjáröflunarmálsverð Friðarhúss, sem haldinn verður nk. föstudagskvöld (29. apríl) í húsnæði SHA að Njálsgötu 87. Borðhald hefst kl. 19, en kokkur að þessu sinni verður Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi. Nánari upplýsingar um matseðil má finna á heimasíðu samtakanna, www.fridur.is.

Með vinsemd og virðingu,

Samtök hernaðarandstæðinga

 

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.